Kirkjuritið


Kirkjuritið - 01.02.1955, Side 22

Kirkjuritið - 01.02.1955, Side 22
68 KIRKJURITIÐ Gróa Gizurardóttir lifði hann og fór í Skálholt. Gjörðist hún þar nunna og andaðist á dögum Klængs, þ. e. a. s. eftir árið 1152. Sonur þeirra var Runólfur, er getur í prestaskrá Ara fróða frá árinu 1143. Er Runólfur þar talinn með norð- lenzkum prestum. Runólfur hefir verið skáld gott, er orti Leiðarvísan, ljóð um helgi hvíldardagsins, sem ort er upp úr einni hómíliunni í Stokkhólms-hómíliubók, og vísu um kirkjusmíð Klængs í Skálholti, sem varðveitt er í Hungur- vöku. Hann gjörðist munkur og andaðist árið 1186. Kona hans var Valgerður Þorbrandsdóttir, en Úlfheiður dóttir. Bróðursonar Ketils er og getið í heimildum, Runólfs Dálkssonar, merkisprests. Hann var mikill unnandi þjóð- legra fræða eins og Ketill. Oft er það, að vér hverfum aftur til liðna tímans í hug- anum. Og þá leitum vér einatt til hinna glæstu tíma, þá er velmegun ríkti og andleg menning stóð í blóma. Þá æskjum vér að vita meira og afla fleiri heimilda, en þær verða oss eigi veittar fleiri né meiri en þær, er skráðar voru endur fyrir löngu, og þær, sem eru leifar liðins tíma og huldar moldu. En sjáandinn, sem gæddur er goðlegri innsýni, getur staðið í kirkjugarðinum í Skálholti og heyrt fagnaðar- óminn í hinni fornu kirkju, er menn sungu hinum eina Guði þakkir og lof. Og hann kann að horfa til suðausturs að Laugarási og sjá hóp veizlubúinna manna koma með Skálholtsbiskup í fararbroddi, með alvörusvip, flytjandi hinn aldna Hólabiskup liðinn til hinzta hvílustaðar í bjartri júlínóttunni árið 1145. Og hann kann að heyra enduróm lexíunnar í sálumessunni almennu, er segir: „Á þeim dögum. Og eg heyrði rödd af himni, sem sagði: Rita þú: Sælir eru dánir, þeir sem í Drottni deyja. Já, þegar upp frá þessu segir Andinn: Þeir skulu fá hvíld frá erfiði sínu, því að verk þeirra fylgja þeim.“ (Opb. 14.)

x

Kirkjuritið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Kirkjuritið
https://timarit.is/publication/443

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.