Kirkjuritið - 01.02.1955, Side 30
76
KIRKJURITIÐ
kirkjusókn, enda eru 9 bæir nærri kirkjunni, og hagar að því
leyti vel til með kirkjusókn. Frá öðrum bæjum er all-langt
til kirkjunnar, t. d. af Fram-Landi og þó sérstaklega frá þeim
þremur bæjum austan Rangár, efst og vestast á Rangárvöllum,
sem kirkjusókn eiga að Skarði.
Aldamótaárið 1900 fluttist ég úr Rangárvallasýslu vestur
í Rorgarfjarðarsýslu. Kirkjusókn var þar lengi mjög góð, sér-
staklega í Leirársókn, þar sem þéttbýlt var í nánd við kirkju-
staðinn. Hins vegar er nokkuð strjálbýlla í Saurbæjarsókn,
og aðeins einn bær, Ferstikla, nærri, og sá eini bær í sókn-
inni, er sést frá staðnum. Sunnan Skarðsheiðar, í Akraness-
og Saurbæjarsókn, var og hélzt enn kirkjusókn í bezta lagi,
en miklu miður ofan heiðar, í Hestþingum og Lundarpresta-
köllum. Og voru þar þó góðir prestar, þeir séra Arnór Þorláks-
son á Hesti og séra Ólafur á Lundi, síðar prófastur í Hjarðar-
holti í Dölum. Hins vegar var góð kirkjusókn í Reykholts-
prestakalli hjá prestahöfðingjanum séra Guðmundi Helga-
syni, fyrrum prófasti í Reykholti. Einnig lengi vel hjá eftir-
manni hans, séra Einari Pálssyni. Hin fáu prestsskaparár
séra Tryggva Þórhallssonar mun hafa verið sæmileg kirkju-
sókn í Hestþingum, en hjá doktor Eiríki Albertssyni fremur
dauf kirkjusókn. Er eins og liggi í landi dauf kirkjusókn í því
prestakalli, hve góðir prestar sem veljast þangað. Alla prests-
skapartíð séra Sigurðar Jónssonar á Lundi var þar mjög dauf
kirkjusókn, sem að miklu leyti stafaði af heilsuleysi prests;
var hann þó talinn dágóður prestur. 1 Mýraprófastsdæmi var
ágæt kirkjusókn í Gilsbakkaprestakalli í tið séra Magnúsar
Andréssonar og í Rorgarprestakalli í tið séra Einars Friðgeirs-
sonar, en miður í Stafholts- og Hvammsprestaköllum.
Hin góða kirkjusókn, sem víða átti sér stað, eins og getið
hefir verið hér að framan, hélzt áfram fram yfir heimsstyrj-
öld eða 1920, en upp úr því fer talsvert að gæta fjölbreyttari
skemmtana í sveitum, sem ungmennafélaögin gangast fyrir.
Færist þetta mjög í vöxt með hverju ári til 1930, og er svo
enn í dag. Varla kemur svo nokkur sunnudagur, að minnsta
kosti að sumrinu til, að einhvers staðar séu ekki auglýstar
skemmtisamkomur. Hinir bættu vegir og bílarnir gjöra nú
sveitafólki miklu auðveldara að sækja samkomur lengra að.
Hefir þetta haft mikil áhrif í þá átt að draga úr kirkjusókn,