Kirkjuritið


Kirkjuritið - 01.02.1955, Síða 38

Kirkjuritið - 01.02.1955, Síða 38
84 KIRKJURITIÐ eigið til dæmis, heldur vísa þeim veginn, að það eins og komi af sjálfu sér og innan að frá þeim sjálfum, hvert og hvernig stefna beri. Hver maður verður að vera eins og hann er gerður. Fari hann að reyna að verða einhver annar, er voðinn vís. Hver maður er sjálfstæður persónuleiki, sem væntir og þarf stuðnings meðbræðra sinna, en hann fá þeir ekki nema þeir njóti skilnings þeirra og viðurkenningar. Vitanlega geta þeir játað sama sannleikann í trúmálum, en tjáning hverrar sálar verður hver með sín séreinkenni samt sem áður og fer það eftir því, sem ég sagði áðan, að það hlýtur fyrst og fremst að byggjast á skapgerð, uppeldi, lífskjörum og lífsreynslu og þar fram eftir götunum. í strjálbýli sveitanna er hægara að fylgjast með líðan hinna sjúku en í fjölmennum kaupstöðum. En í bæjunum er líka mikið og óeigingjarnt starf unnið og meira en almenningur og vér sveitaprestar gerum oss ljóst. Það mun oft vera nokkr- um vandkvæðum bundið fyrir prestana þar að fá vitneskju um þá, sem liggja sjúkir í heimahúsum, nema til þeirra sé beinlínis leitað og þeir beðnir að koma, en við það er fólk of feimið og hlédrægt. Og þó að ég viti vel, að ekki standi eins opnar dyr þar eins og í sveitinni, veit ég eigi að síður, að prestarnir eru kærkomnir gestir, þegar erfiðleikar steðja að. Á þessu væri hægt að ráða bót, ef samvinna væri um það milli læknis og prests og læknirinn léti jafnan viðkomandi prest fá vitneskju um sjúklinga, sem væru rúmliggjandi um lengri tíma í heimahúsum, og jafnan, er hann teldi þörf á komu prests, sem bæði yrði til að gleðja og styrkja hinn sjúka og ástvini hans. Eins og öllum er kunnugt, er víðar sjúka að finna en í heimahúsum. Þegar sjúkdómurinn er alvarlegs eðlis, er leitað til sjúkrahúsanna í bæjunum og í stöðugt vaxandi mæli. Þangað fara menn sér til heilsubótar hvaðanæfa utan af landsbyggð- inni, engu síður en hinir, og öll eru sjúkrahúsin yfirfull og er sifellt að fjölga. Nú er meira að segja svo ráð fyrir gert, að miklar byggingar rísi upp á næstunni hér í bænum í þessu skyni. Á ég þar einkum við stækkun Landsspítalans og Bæjar- sjúkrahúsið, sem byrjað er að byggja. í sjúkrahúsunum dvelja sjúklingarnir lengri og skemmri tíma og sumir langdvölum. Mér er vel kunnugt um það, að

x

Kirkjuritið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Kirkjuritið
https://timarit.is/publication/443

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.