Kirkjuritið - 01.03.1955, Blaðsíða 5
Dr. ÁRNI ÁRNASON, lœknir:
Þjóðin og framtíð kirkjunnar.
öll menning er vaxin upp af einhverjum rótum. Talað
er um þrjár rætur vorrar vestrænu menningar, forngríska,
rómverska og kristilega. Hin forngriska menning er móðir
frelsisins, merkilegrar heimspeki og fagurra lista. Róm-
versk menning er talin móðir réttar og réttarfars, en
þar er einnig að finna merkilegar bókmenntir og orðsins
list. Þessar tvær greinar eru svonefnd klassisk eða sígild
menning. Með kristindóminum, sem leggur áherzlu á eilíft
gildi og eilíf örlög hvers einstaklings, kemur kenningin
og boðorðið um kærleikann og bræðralagið, og hann sam-
einar einnig í sér frelsið og réttlætið. Manngildishugsjón
hans og siðaboð ei’u viðurkennd af öllum, hvað sem trú
þeirra annars líður.
Á vorri öld þekkingar og tækni, þar sem efnið og efnis-
gæðin eru vegsömuð og enda skipað í öndvegi, hættir
mönnum til að gleyma þeim andlegu verðmætum, sem
ekki eru jafnframt undirstaða tækni og efnislegra fram-
fara. En það eru þó þau andlegu varðmætin, sem að miklu
leyti eru undirstaða vorrar kristnu, vestrænu menningar.
1 vorri vestrænu menningu hafa verið uppi margar
stefnur á ýmsum sviðum og ýmsum öldum. Með stefnu
er hér átt við skoðanir og dóma ákveðinna manna, sem
hafa látið mikið að sér kveða, og fylgismanna þeirra,
um ákveðin efni á hinum andlegu sviðum, sem síðan hafa
mótað skoðanir og starfsemi annarra í þessum efnum.
Það hafa verið uppi stefnur í heimspeki, þjóðmálum, list-
Um, bókmenntum, þekkingarleit, læknisfræði, trú og sið-
gæði. Þessar stefnur hafa verið misjafnar að efni og gildi