Kirkjuritið


Kirkjuritið - 01.03.1955, Page 15

Kirkjuritið - 01.03.1955, Page 15
EINAR JÓNSSON MYNDHÖGGVARI 109 því, er hann vissi sannast og bezt. Ef honum þótti gæta áhrifa annarra á verk sitt, hætti hann við það. Fegurðarþrá sinni og fullkomnunar brást hann aldrei. Þannig barðist hann, einlægur, sannur, heill — til sigurs. m. En í þeirri baráttu stóð hann ekki einn manna, og er skylt að minnast þess með þökk. Einar nefnir þar fyrst prests- konuna í Hrepphólum: „Hvatning þessarar göfugu konu var fyrsta hjálpin, sem mér var veitt á listabraut minni, og upp- örvun sú og hughreysting, sem fólst í orðum hennar, hjó bönd af veikum vængjum. Mér fannst ég geta flogið.“ Því lengra sem leið, kom einnig betur og betur í ljós, að hann átti mannheill mikla og skilningurinn óx á gildi verka hans. Alþingi veitti fé til þess að reisa hús yfir þau, og vinir og aðdáendur bættu því við, er til þess þurfti. Heimili hans átti aftur að verða á íslandi. Það var mikil gæfa honum og oss íslendingum. Alþingi og ríkisstjórn eiga skildar þakkir fyrir einhuga, ágætan stuðning fyrr og síðar. Honum farast svo orð: „Okkur hefði þótt ærið gleðilegt að geta þakkað meira en með orðum einum. Mér er hulið, hvaða verð fram- tíðin leggur á lífsverk mitt. En ef það verður eitthvað, mun land mitt þakka þeim, er gáfu, og þinginu, er leiddi verkið til lykta, — og með hverju fær maður yfirleitt þakkað allt, sem veitt er?“ Enn vil ég flytja þökk alþjóðar þeirri konu, er stóð við hlið honum, unnusta og eiginkona í meira en hálfa öld. Hann hefir skrifað um það, er hann sá hana fyrst, sextán ára gamla: „Ég var gripinn þeirri undarlegu tilfinningu, að við tilheyrð- um hvort öðru, og enginn gæti tekið hana frá mér.“ Og vissu- lega sá hann rétt og fann. Engin kona, sem ég hefi séð, hefir minnt mig meir á Rut og orð hennar í Heilagri Ritningu: .,Hvert sem þú fer, þangað fer ég, og hvar sem þú náttar, þar nátta ég; þitt fólk er mitt fólk og þinn Guð er minn Guð. Hvar sem þú deyr, þar dey ég, og þar vil ég vera grafin." Fegurð ástar hennar endurspeglast í listaverkum hans. Hún stefndi hátt yfir moldina, er hverfur aftur til jarðarinnar, þar sem hún áður var — í himininn til morgunroða upprisunnar yfir fjöllum lífsins. Hún skildi hann, ræddi við hann um skáld-

x

Kirkjuritið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Kirkjuritið
https://timarit.is/publication/443

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.