Kirkjuritið


Kirkjuritið - 01.03.1955, Page 16

Kirkjuritið - 01.03.1955, Page 16
110 KIRKJURITIÐ verk hans eftir því sem þau urðu til og drauma listar hans. Hún helgaði honum og æfistarfi hans líf sitt. Hann vildi, að þau ættu saman fegurð listarinnar og fullkomnun. Laufin í lárviðarsveignum um höfuð honum eru einnig hennar. Það skyldum vér íslendingar ávallt muna og blessa frú Önnu, konu Einars Jónssonar, um leið og sjálfan hann. IV. Það er ekki ætlun mín að reyna til að gjöra list Einars Jónssonar nein skil. Ég er ekki listfræðingur, finn aðeins, hvað mér sjálfum þykir fagurt og hvað ekki. Fyrir mér verða ekki greind sundur list hans og persónuleiki. Honum auðnaðist það að vera jafn góður maður og hann var mikill og lauk þannig því listaverki, sem æðst er allra: Listaverki mannsæfinnar. Myndir Einars Jónssonar eru ljóð, sem hafa alltaf mikinn boðskap að flytja. Útilegumaðurinn er til dæmis heilt kvæði: Hann hefir notið ástar og tryggðar góðrar konu uppi í öræfunum, unz hún hnígur niður andvana við hlið honum. Nú er það hans, skógar- mannsins seka, þótt það kunni að kosta frelsi og líf, að búa henni leg í vígðri mold og bjarga svo sál hennar. Eða minnismerki Hallgríms Péturssonar. Mér finnst það hliðstætt kvæði Matthíasar. Hallgrímur er bundinn sjúkdóms- fjötrum við rekkju sína. Sár og kaun og benjar holdið þjá. Hrörnun og dauði fer að. En hátt yfir rekkjunni rís andi hans og hefur á loft hörpu sína og krossinn Krists. Og þjóðin fylgir, karlar, konur, æska og elli. Hún stefnir upp á við, hærra og hærra. Eða Þróun — stórfengleg hátíðakantata í þremur þáttum, sem lýsir stígandinni frá dýri til manns. Uxinn hvílir í náð- um við enga framsókn. Jötunninn veit fram, en krýpur álútur. Hann heldur fast annarri hendi um dýrshornið, en hinn hand- leggurinn hvílir þungt á herðum mannsins, sem stendur upp- réttur. Armur jötunsins og líkami mannsins mynda kross. Jötuneðlið í manninum er honum þung byrði. Og þó heldur hann krossmarki hátt á lofti, því að hann hefir gjört það að framsóknar og sigurmerki sínu. Það er stefnumark mann- kyns. Fullkomnunin fæst fyrir þjáningar. „Öll fórn fæðist fyrst hjá Guði,“ mælti hann síðar.

x

Kirkjuritið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Kirkjuritið
https://timarit.is/publication/443

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.