Kirkjuritið - 01.03.1955, Síða 19
EINAR JÓNSSON MYNDHÖGGVARI
113
og út frá. Hann er hjarta hennar og eilífa lögmál. í honum
er fólgið Kristsfyrirheitið, miðstöð tilveru vorrar, þar sem ég
sé Krist sem miðdepil allrar sköpunar" .......
„Munu ekki flestallir trúarflokkar vera að meiru eða minna
leyti trúarflokkar Krists, þótt þeir beri ekki nafn hans?“
„Alls staðar í tilverunni, þar sem er staður fyrir minnsta
vott af kærleika, þar er Kristur og Krists trú. Hann getur
jafnt, hvar sem hann annars á altari, ríkt í hreysi fátæklings-
ins (sem frá voru sjónarmiði sýnist svo) sem hins ríkasta,
þ. e. jafnt í þeirri lægstu lífsveru sem þeirri guðdómlegustu
sál. Hann er kærleikurinn sjálfur, von vor og huggun, hann
er vegurinn, sem óvitar og sakleysingjar rata, hann er sann-
leikurinn, sem aldrei svíkur, hann er lífið sjálft.
Þótt aldrei hefði verið um hann kennt, mætti hver lífsvera
samt heyra hann hrópa til sin úr ríki tilverunnar, leita hans
og finna hann eins eðlilega sem kiðlingurinn brjóst móður
sinnar.“
Trú Einars Jónssonar á Krist mótar list hans. Hann sjálfan
vill hann boða og áhrif hans á sál sína. Og hann gjörir það
með þeim hætti, að hann er æðsti prestur þjóðar sinnar. Brenn-
andi í anda vill hann koma þjóðinni til kristins þroska og
manndóms, leiða hana áfram, hærra, til voldugs framtíðar-
hlutverks. Til þess lætur hann steinana tala, já, öld af öld.
Hnitbjörg eru helgidómur, kristið musteri:
Eldar af óttu í andans heimi,
bjarmar af krossi Krists,
Htur þar lávarð Ijóss og friöar
hafinn á tímans tjald.
Fyrir nokkrum árum sá Einar mynd af Kristi, sem talið
er að komið hafi fram á líkklæði hans. Mynd þessi er aðdáan-
lega fögur, og varð Einari þegar helgur dómur. Eftir henni
mótaði hann Kristslíkan það, sem stendur steypt í gipsi í
Hallgrímskirkju og í sal í listasafninu, þar sem kista Einars
stóð síðar. Bak við líkanið er nú höfuðið, sem Einar gjörði
á ný. Er það ummyndað af guðdómlegri tign og ró. Þó vildi
Einar vanda verkið enn betur, og síðustu dagana undir æfi-
lokin gekk hann í litla klefann í húsinu sínu og mótaði höfuð
8