Kirkjuritið


Kirkjuritið - 01.03.1955, Qupperneq 24

Kirkjuritið - 01.03.1955, Qupperneq 24
118 KIRKJURITIÐ „Eftir messu söfnuðust landar saman fyrir kirkjudyr- um og gengu þaðan í prósessíu, tveir og tveir samsíða, út fyrir bæ æðilangan veg, þar til staðar var numið í grasgarði miklum með skógarrunnum í og lundum á milli. Þeir tveir karlmenn, er í broddi fylkingar gengu, báru hvor sitt merki, annar stjörnufána Bandaríkjanna, hinn fálka islenzkan á bláum feldi; þeir voru báðir í þjóðbún- ingi vorum hinum forna, er Sigurður málari Guðmundsson hefir vakið til lífs meðal stúdenta heima á Fróni. Kven- fólkið gekk sér á eftir karlmönnunum, og voru nokkrar þeirra í skautbúningi og nokkrar í peysufötum, svo hinn litli íslenzki hópur hafði einkennilega þjóðlegan blæ á sér. Á eftir fylgdi fjölmennur skari af fólki því, er verið hafði í kirkjunni, og nam ásamt oss staðar í lundi einum milli trjánna í garðinum. Þar voru fánarnir reistir upp beggja megin við ræðustól, er vér höfðum látið gera skömmu áður.“ Fóru nú fram ræðuhöld og söngur, er þótti vel takast, og urðu íslendingar því sjálfum sér og landi sínu til sæmd- ar með hátíðahaldi þessu, en margir, auk þeirra, einkum úr hópi frænda vorra Norðmanna, voru viðstaddir bæði guðsþjónustuna og önnur hátíðahöld dagsins, eins og getið er í frásögn séra Jóns, er vitnað var til. En auk hins sögulega tilefnis hennar, er guðsþjónusta sú, sem hér um ræðir, sérstaklega frásagnarverð vegna þess, að hún var fyrsta íslenzka guðsþjónustan í Vestur- heimi, og þjóðhátíðin í Milwaukee jafnframt fyrsti þjóð- minningardagur Islendinga vestan hafs. Hátíðahöld þessi mörkuðu því í tvennum skilningi tímamót í sögu Islend- inga þarlendis. Hitt skipti þó eigi minna máli, þar er um ræðir trúrækni og þjóðrækni íslendinga vestan hafs, að við þessa guðsþjónustu flutti séra Jón Bjarnason frábær- lega snjalla og áhrifamikla hátíðarprédikun, en hann lagði út af upphafsversunum í 90. sálmi: „Drottinn, þú hefir verið oss athvarf frá kyni til kyns.“ 1 niðurlagi hinnar andríku og mælsku ræðu sinnar, sem er jafn þrungin að

x

Kirkjuritið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Kirkjuritið
https://timarit.is/publication/443

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.