Kirkjuritið


Kirkjuritið - 01.03.1955, Page 49

Kirkjuritið - 01.03.1955, Page 49
Sjómannaheimilið á Raufarhöín. Eins og kunnugt mun, er atvinnulífi þannig háttað á Raufar- höfn, að á hverju sumri kemur þangað fjöldi manns til síld- veiða úr öllum landshlutum og auk þess margt erlendra skipa. Nú seinni árin, er síldin fór að halda sig á austlægari miðum, má segja, að Raufarhöfn sé orðin miðstöð síldveiðanna fyrir Norðurlandi, sem Siglufjörður var áður. íslenzku skipin leggja þar upp afla sinn og margt fólk vinn- ur að síldverkun í landi. Aðbúnaður þessa fólks hefir löngum verið ófullkominn, þó að hann hafi farið batnandi í seinni fíð. Yfirleitt hafa sjómenn engan samastað, þar sem þeir geta verið í ró og næði, þegar þeir eru í landi. Þetta hefir oft orðið til þess, að fólk kaus að gleyma leiðindum og einstæðingsskap við áfengi og óheilbrigt skemmtanalíf. Til þessa ber að rekja það óregluorð, sem farið hefir af Raufarhöfn. Margir hugsandi menn gerðu sér ljóst, að hér var mikil þörf úrbóta og að koma þurfti upp vistlegum stað, þar sem sjómenn og aðkomufólk gætu átt athvarf í frístundum sínum. Gæti staður þessi orðið þeim eins konar annað heimili, sem fjarri væri heimilum sínum mestan hluta sumarsins. Á síðastliðnu vori var svo hafizt handa fyrir alvöru að hrinda þessu máli í framkvæmd. Séra Páll Þorleifsson á Skinna- stað flutti framsöguerindi á synodus í júní síðastliðnum, þar sem hann ræddi nauðsyn sjómannaheimila í kauptúnum og kaupstöðum við sjávarsíðuna, meðal annars á Raufarhöfn. Var síðan samin tillaga og samþykkt þess efnis, að prestar í samráði við félög og stofnanir beittu sér fyrir slíku. í fram- haldi af þessu tók svo sóknarpresturinn á Raufarhöfn að sér að koma upp og sjá um framkvæmdir og starfrækslu heimil- isins. Að þessu sinni gat heimilið ekki tekið til starfa fyrr en 5. ágúst. Stóð þá á húsnæði því, er tekið var á leigu. Síðan var það opið alla daga til 20. ágúst síðastliðinn, en var þá lokað, enda þá vertíð úti og flest skip farin heim. Starfsemi Sjómannaheimilisins þennan stutta tíma átti mikl-

x

Kirkjuritið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Kirkjuritið
https://timarit.is/publication/443

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.