Kirkjuritið - 01.05.1959, Blaðsíða 45
KIRKJURITID
235
mannlegur kjarkur og dugnaður getur afrekað og þótt fram-
girni vor reki okkur áfram, frá hinu jarðbundna lífi frum-
mannsins til hinnar flóknu tilveru ákveðinni af vísindum nútíð-
arinnar, og þótt við hitum okkur við heitar uppsprettulindir
eins og hér í Reykjavík og höfum vald yfir læknandi ljósgeisl-
um og getum þotið í loftinu í flugvélum, og þótt það hafi verið
fundin upp meðöl við fjölda af líkamlegum sjúkdómum, og þó
að það, sem var undur í gær, sé hversdagslegt á morgun, og
það, sem var munaður í dag, sé eftir nokkra daga alveg bráð-
nauðsynlegt.
En eitt er þó alveg víst, að ekkert er sambærilegt við þá von,
sem við öll berum í brjósti um ódauðleikann, og að það er
máske ekkert til, sem betur sameinar oss hinni andlegu veröld
en einmitt fagur söngur.“
Þannig mælti Sigurður Birkis og enn fremur:
„Þegar söngmenningin er byggð á sjálfri kirkjunni, þá er
maður örugglega á réttri leið. Það hefir íslenzku þjóðinni ver-
ið vel Ijóst, þess vegna leggur fólkið í dreifbýlinu á sig þessa
ótrúlegu fyrirhöfn til að fegra og fullkomna kirkjusönginn.
Fólkið elskar fyrst og fremst sína kirkju og það elskar að syngja
söngva kirkjunnar.‘“
Að lokum sagði Sigurður Birkis:
„Ég vildi óska, að maður gæti í framtíðinni kallað ísland,
söng- og sögueyjan, með réttu. Að þjóðin yrði í sannleika syngj-
andi þjóð, lofsyngjandi Guði sínum og skapara. Þá væri miklu
marki náð, fyrirhöfn öll að fullu greidd og þjóðin enn mennt-
aðri og siðfágaðri og líklegri en áður til að ná marki þeirrar
fullkomnunar, sem er eða á að vera hugsjón og þrá alls mann-
kyns. Soli Deo Gloria.“
Nýir kirkjukórar eru stofnaðir á íslandi jafnt og þétt, og er
markmiðið það, að í hverri sókn og hverri kirkju verði kór.
Þetta er hugsjón Sigurðar Birkis. Og þeir, sem hafa kynnzt
brennandi áhuga hans á kirkjusöng á íslandi, efa ekki, að þessi
mikla hugsjón hans verði að veruleika. Og það áður en langt
um líður. Nú þegar er tala meðlima kirkjukóra alls yfir 4000.
Þannig eru í kirkjukórum íslands hlutfallslega fleiri menn en
í nokkuru hinna Norðurlandanna. Sú staðreynd talar skýrt
sínu máli.
[Á.G. þýddij.