Kirkjuritið - 01.04.1960, Blaðsíða 11
KIRKJURITIÐ
153
þetta kvelur hann þar sem hann liggur og þjáist. Á hinum
seinu næturstundum snýr hann sér frá vizku og heilabrotum
vina sinna og ákallar lausnara sinn. „Og eftir að húð mín hef-
ur þannig verið eyðilögð, þá mun ég án holds míns sjá Guð“
(Job. 19, 26). Þannig er Job, sem hafnað var fyrir engar sakir,
ofurseldur árásum Myrkrahöfðingjans, orðinn að mynd af hin-
um Eina Sanna, er yfirgefinn var og sagan veit frá að greina,
það er af Jesú Kristi.
5. Dagur Drottins hjá spámönnunum og dagrenning
Messíasar.
Spámennirnir aðvara þá, sem allt of einfaldlega óska þess
„Dagur Drottins" renni upp. Amos segir, að það muni verða
dagur myrkurs, en eigi ljóss fyrir þá, sem hafa smáð nafn hans
(Am. 5,18). Sjá einnig Jesaja 5, 20 og 21,12 og 10,12-17 og
454, 7. En hinn sérstæði spádómsboðskapur er, samkv. Jesaja
um sigur Ijóssins yfir myrkrinu.
Sá lýður, sem gengið hefur um í myrkri, hefur séð mikið ljós,
a þá hefur ljós skinið, er áður bjuggu í landi niðamyrkurs (Jes.
-*-» 1—5). Ljósið er ljós Guðs orðs (Jes. 2,1-5) og það heyrir
hinum konunglega Messíasi, er kemur með frið og réttlæti (Jes.
p> 5, sbr. 11,1-10), það er ljós hins líðandi þjóns, er ber synd-
lr lýðs síns. Hann mun opna augu hinna blindu, hann mun leiða
þá út úr fangelsi, er í myrkrinu sitja, hann mun verða ljós
Þjóðanna (Jes. 42,1-7 og 49,1-7, sbr. 52,13 til 53,12).
Frammi fyrir hinum voldugu í þessum heimi, sem enda munu
*fi sína í afgrunnsdjúpinu, rís hinn trúi vottur, hinn sundur-
ki'amdi og líðandi þjónn. Endurleysandi kærleikur hans mun
leiöa þjóðimar aftur (á rétta leiðj og u'p'plýsa þjóðirnar.
I von á hann, er koma skyldi, biðu hinir trúföstu í ísrael
eftm „Sól Réttlætisins", sem flytur með sér lækningu á vængj-
Um sér (Malakí 4, 2). En ísrael er ekki aðeins boðberi ljóssins,
heldur verður þjóðin að vera mynd, sem táknar Ijósið. Það er
því að framkvæma réttlæti og kærleika, að þjóðin verður
sannsögult vitni Guðs orðs og að ljós hennar mun skína inn í
myrkur veraldarinnar (Jes. 56, 6-10). Hér erum vér komnir að
sjálfum fagnaðarboðskapnum.