Kirkjuritið - 01.04.1960, Blaðsíða 39
KIRKJURITIÐ
181
í fyrirheitna landinu gegndu þeir framvegis sömu störfum,
að burðarstörfunum undanskildum. Fyrsta Kronikubók skýrir
svo frá: Þá er Davíð var gamall orðinn og saddur lífdaga,
gjörði hann Salomó son sinn að konungi yfir ísrael. Og hann
stefndi saman öllum höfðingjum ísraels, prestunum og Levít-
unum. Og Levítarnir voru taldir, þrítugir og þaðan af eldri,
°g höfðatala þeirra var þrjátíu og átta þúsund karlmenn. „Af
þeim skulu tuttugu og fjögur þúsund vera fyrir verkum við
hús Drottins, sex þúsund skulu vera embættismenn og dóm-
arar, fjögur þúsund hliðverðir, og fjögur þúsund skulu lofa
Drottin með áhöldum þeim, er eg hef látið gjöra til þess að
vegsama með,“ sagði Davíð.
Söngmannaflokkarnir voru tuttugu og fjórir og tóku þeir
Davíð og hershöfðingjarnir frá til þeirrar „þjónustu niðja As-
^ls, Hemans og Jedútúns, er að spámannahætti lofuðu Guð
með gígjum, hörpum og skálabumbum“.
Eftir eyðingu musteris Salómons og herleiðinguna miklu til
Babýlonar var musterið endurreist. Segir svo í Esrabók: „Og
á öðru ári eftir heimkomu þeirra til húss Guðs í Jerúsalem,
í öðrum mánuði, byrjuðu þeir Serúbabel Sealtíelsson og Jesúa
Józadaksson og aðrir bræður þeirra, prestarnir og Levítarnir,
°g allir þeir, sem komnir voru úr útlegðinni til Jerúsalem, að
Setja Levíta, tvítuga og þaðan af eldri, til að hafa eftirlit með
hyggingu húss Drottins.“ Að því verki loknu skipuðu þeir
■•Presta eftir flokkum þeirra og Levíta eftir deildum þeirra til
þess að gegna þjónustu Guðs í Jerúsalem, samkvæmt fyrirmæl-
Urn Mósebókar".
Önnur bræðrafélög trúarlegs eðlis þekktust einnig hjá Gyð-
lngum, eins og t. d. Essenarnir, er uppi voru nokkrum öldum
fyrir og eftir fæðingu Krists. Þeir iðkuðu miskunnsemi, göfgun
°g hreinleika í lifnaðarháttum og var öll búsýslan og fjárhald
þeirra sameiginlegt.
Elztu bræðrafélög, sem sögur fara af, munu hafa verið munka-
reglur í Indlandi og Egyptalandi. Talið er, að þær hafi verið
lll þar þúsundum ára fyrir Krists burð. Þekking á munkaregl-
Unum barst hins vegar fyrst til Vesturlanda, er heilagur Ath-
aníus fluttist til Rómaborgar ásamt tveimur kristnum munk-
Um árið 340.
Um það bil þremur öldum síðar komu fyrstu frumbyggjar