Kirkjuritið - 01.04.1960, Blaðsíða 22

Kirkjuritið - 01.04.1960, Blaðsíða 22
Hvers vegna trúin á Guð getur verið yður til hjálpar. Að þessu sinni er mér ætlað að segja yður, hvernig Guð geti hjálpað yður. En nú þekki ég yður ekki, né starf yðar, veit ekki um uppeldi yðar né lífskjör. Það eina, sem mér er fært, er að segja yður, hvernig trúin á Guð hjálpar mér. En það er líka í lagi: Því að, hvað sem skilur þig og mig að öðru leyti, þá eigum við sammerkt í því, sem mikilsverðast er. Hvort held- ur það ert þú, eða náungi þinn eða mennirnir, sem áttu tal við Jesú á sínum tíma, þá getum vér hlegið að því sama, þótt vænt hver um annan, fundið til fjarstæðna og mikilleika lífs- ins, gjört hver öðrum gott eða illt. Hverjum manni er líka vitanlegt, að hann á aðeins völ á skömmum tíma, hann hlýtur að deyja, og þá bíður hans myrkur eða ljós. Og að það er að því leyti, sem vér erum menn, að Guð kemur oss til hjálpar. Hvernig er trúin á Guð mér til hjálpar? í fyrsta lagi get ég þess vegna horfzt í augu við heiminn. Hann er enginn mar- tröð, eins og manni finnst hann stundum vera, né nein enda- leysa eins og sumir virðast halda. Hann hefur tilgang, — sem Guð hefur ákvarðað. Ég skil það ekki til hlítar. Hvernig ætti ég að gera það? Guð er Guð, en ég fávís maður og syndugur. Hitt hefur Jesús Kristur ljóslega sýnt og sannað, að mennirnir. þú og ég, gildum mest í augum Guðs. Og það er að hinu leyt- inu mikilsverðast, hvað oss vinnst úr þessu lífi og hvernig vér búum í haginn fyrir oss í öðru lífi. Fjöldi manns virðist missa af strætisvagninum, en það er samt vagn, sem ríður a að ná í! Og eitthvert fer hann! Þar næst get ég farið að horfast í augu við aðra menn. Hvort sem þeir vita það eða ekki, eru þeir einhvers virði 1 augum Guðs. Og því get ég ekki farið með þá eins og því vseri ekki til að dreifa. Trúin á Guð hjálpar mér til að skilja þa>

x

Kirkjuritið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Kirkjuritið
https://timarit.is/publication/443

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.