Kirkjuritið - 01.04.1960, Blaðsíða 38
Brœðrafélög og leikmannastarfsemi.
Upphaf orðsins bróðir er rakið til sanskrítar, nefnist þar
bráthár. Sami stofn kemur fyrir í flestum málum af Indó-ger-
mönskum uppruna, svo sem í fornensku bróðor, fornþýzku
broþar og í nútímamálum, ensku brother, þýzku bruder og
dönsku broder.
Bræður eru þeir menn nefndir, sem fæddir eru af sömu for-
eldrum, og hálfbræður ef eingöngu er um annað foreldrið sam-
eiginlega að ræða, en fóstbræður, séu þeir aldir upp saman.
Auk þess hefur orðið táknræna merkingu, þegar talað er um
bræðra- og fóstbræðralög. Sú merking orðsins er einnig æva-
forn. Menn sórust í fóstbræðralag að fornnorrænum sið á þann
hátt, að rist var úr grassverðinum löng torfa, hún síðan teygð
og reits upp á spjótsodd, án þess að endar hennar væru skornir
frá jörðinni. Gengu síðan hinir tilvonandi fóstbræður saman
undir hana. Mun þetta hafa átt að tákna endurfæðingu þeirra
af hinni sameiginlegu móðurjörð, en Alfaðir goðatrúarinnar
verið hinn sameiginlegi faðir.
Iijá Gyðingum voru kynþættirnir nokkurs konar bræðra-
félög. Þannig voru fyrstu Levítarnir í rauninni bræður, synir
Leví, sonar Jakobs ísakssonar, Abrahamssonar. Á öllum tímum
komu þeir við sögu guðsþjónustu Gyðinga. Á eyðimerkurgöngu
ísraelslýðs er hlutverki þeirra lýst í annarri og fjórðu Móse-
bók. Gegndu þeir störfum við sáttmálsbúðina og samfunda-
tjaldið, hið háheilaga, bæði þjónustustörfum og burðarstörfum-
„Eftir boði Drottins var þeim hverjum einum undir umsjon
Móse vísað á það, er þeir áttu að annast og þeir áttu að bera;
og þeir voru taldir, svo sem Drottinn hafði boðið Móse.“