Kirkjuritið - 01.04.1960, Síða 37

Kirkjuritið - 01.04.1960, Síða 37
KIRKJURITIÐ 179 þéttbýlinu — ef þá nokkurri — yfir hinn gamla bjargræðis- tíma. Rauðikross íslands og fleiri mannúðarfélög hafa rekið sum- ardvalarheimili fyrir börn. Þjóðkirkjan hefur líka komið á fót surnarbúöum á Löngumýri sem kunnugt er. Allt er þetta til bóta. En mikið vantar á, að það fullnægi þörfinni. Nú hefur m- a. komið fram hugmynd um að nota suma héraðsskólana sam sumardvalarstaði fyrir börn. Einnig það er vel athugandi °g getur verið framkvæmanlegt. En í þessu sambandi má ekki Steyma, að börnin og unglingarnir þurfa að hafa heppileg við- fangsefni, hvar sem þau dveljast. Það var mestur kostur sveita- heimilanna að tengja börnin lífböndum við náttúruna og skepn- urnar og æfa þau við fjölbreytt störf. Það verður aldrei gert ems á fjölmennum stofnunum, þótt í sveit séu. En margt má þ° gena í því efni meira en nú er. Annars er ég þeirrar skoðunar, að vér eigum að koma á þegnskylduvinnu unglinga. Hef minnzt á það áður og fer ekki ut í þá sálma að sinni. Húsgangar. Fyrstu vísuna, sem hér fer á eftir, kunna fjölmargir. Ég hef alltaf haldið hana skagfirzka. Ekki alls fyrir löngu sagði Frí- mann Jónasson skólastjóri mér, að þegar hann var að alast upp ,r fyrir norðan, hafi vísurnar verið þrjár, sem fylgdust að. Set eS þær því hér allar, þótt ekki sé fullvíst, að þær eigi saman. Illt er að halla á ólánsmann, ætti varla að gera, það hafa allir eins og hann einhvern galla að bera. Reyndu á öllu að hafa hóf, hættu fólk að lasta. Aldrei skyldir þú á þjóf þungum steini kasta. Þó að hrösun hans sé ljót og hegning fylgi að vonum, það er eitthvert ættarmót yfir þér og honum. e ta er betra geymt en gleymt. Gunnar Árnason.

x

Kirkjuritið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Kirkjuritið
https://timarit.is/publication/443

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.