Kirkjuritið - 01.04.1960, Qupperneq 46

Kirkjuritið - 01.04.1960, Qupperneq 46
188 KIRKJURITIÐ styrjöldinni, bauð Clark fram þjónustu sína sem herprestur. Fyrir nokkrum mánuðum hafði hann þó sagt við mig, að hann myndi ekki fara í herinn, ef til styrjaldar kæmi. Ég vissi þó, hvað fyrir honum vakti: Hann gat ekki sætt sig við það, hið innra með sér, að hann fengi að lifa við meira öryggi en aðrir. „Ef það er þér nokkur huggun,“ sagði ég, „hefur þú sem prest- ur fræðilega möguleika til að vera drepinn, þótt þú berir ekki vopn. í fyrri heimsstyrjöldinni féllu hlutfallslega jafnmargir prestar sem aðrir liðsforingjar.“ Þetta hafði auðsjáanlega djúp áhrif á hann. Eftir stutta undirbúningsmenntun fékk hann liðsforingja- nafnbót, og í nóvember árið 1942 fékk hann skipun um að fara til Evrópu. Hann kom til Fíladelfíu ásamt konu sinni, Betty, og tveggja ára syni sínum, til að kveðja okkur. Betty sneri aftur heimleiðis skömmu síðar. Hún átti von á öðru barni sínu. Bréfin, sem hún fékk frá Clark, sendi hún svo aftur til okkar. Hann hafði búizt við að verða sendur til Evrópu, en þeirri ákvörðun var breytt, og í þess stað var hann ásamt tveimur öðrum herprestum sendur til Grænlands. í einu af bréfum hans stóð þetta: „Ég er að vissu leyti ánægður með að vera sendur á þenn- an stað. Þar er meira öryggi, en aftur mjög einmanalegt. Að hinu leytinu olli þetta mér nokkrum vonbrigðum. Hugsunin um hættur og hetjudáðir heilla okkur alla að vissu leyti. Ég hef gert allt, sem ég gat og kannske meira en mér var leyfi' legt, til að komast þangað, sem harðast mun verða barizt .. Þetta var síðasta bréfið, sem við fengum frá honum. Hinn 11. febrúar 1943 fékk Betty svo hljóðandi símskeyti frá yfirherstjórninni: „Clarks er saknað.“ Næstu vikur lifðum við öll í kveljandi óvissu. Einmitt um þessar mundir var ég sendur til Evrópu í áríð- andi erindum fyrir kirkjuna. Kvöld eitt, er ég var í Lundún- um, heyrði ég í útvarpsfréttum, að skip hefði farizt í Norður- Atlantshafi, og að f jórir amerískir prestar hefðu látið þar lífið- Þegar ég nokkrum klukkustundum síðar lá í svefnvagni a leið til Glasgow, sá ég í draumi son minn koma syndandi a móti mér. Mér þótti sem ég fyndi sjávarlyktina. Ég heyrði ekkert, sá hann aðeins rétta mér báðar hendurnar, og andlit hans bar merki þjáninga. Ég reis upp í ofboði til að ná til hans,

x

Kirkjuritið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Kirkjuritið
https://timarit.is/publication/443

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.