Kirkjuritið


Kirkjuritið - 01.01.1961, Síða 19

Kirkjuritið - 01.01.1961, Síða 19
Avarp frú Huldu Jakobsdóttur bæjarstjóra, er lagður var hornsteinn Kópavogskirkju 20. nóv. s. I. Þegar við minnumst þess áfanga, sem nú er náö, er ekki langt aö líta til baka fyrir okkur, sem erum þátttakendur í þeim at- buröum, sem nú eru aö gerast hér í Kópavogi. Þaö eru ekki nema 12 ár síðan sjálfstœtt sveitarfélag varö til hér á þessum grjóthálsum. Ennþá skemmra er síöan Kópavogs- sókn varö til, þaö eru aðeins átta ár. Fyrsti aöalsafnaöarfundur var háldinn í október fyrir 7 árum, og var þá þegar samþykkt aö hefja undirbúning aö kirkjubyggingu og árétta þaö, aö þessi staöur, þar sem viö nú stöndum, Borgimar, yröi örugglega ekki tekinn undir íbúöábyggingar, en staöurinn haföi þegar fyrir löngu veriö œtlaöur fyrir kirkjubyggingu af forráöamönnum Kópavogshrepps, sem þá var. Fimm ár liöu þó áöur en hafizt vceri handa um kirkjusmíöina. Þrátt fyrir létta sjóöi sóknar og bœjar, en meö hjálp kirkju- byggingasjóöa ríkisins og lánastofnana og samstilltu átáki safn- aöarmanna, er hér nú risiö af grunni veglegt hús, sem ég vona aö eigi eftir að veröa sannkallaö guöshús. Ég vil trúa því, að bygging þessarar kirkju og annarra, sem nú eru í smíðum, sé ekki eingöngu tákn um velmegun og fram- farir, heldur einnig tákn þess, nú á atómöld, iOÖ efnishyggjan hafi þrátt fyrir ullt ekki alveg náö yfirhöndinni og aö hugur nútímamannsins „œski einhvers skírra, einhvers blárra“ eins op skáldiö kvaö. Kópavogsbúum óska ég til hamingju og vona, aö þessi bygg- ing eigi eftir aö veröa þeim tákn einingar og samhéldni og þakka öllum, sem hafa lagt sinn skerf til þess aö tekizt hefur aö ná þessu marki.

x

Kirkjuritið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Kirkjuritið
https://timarit.is/publication/443

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.