Kirkjuritið - 01.07.1961, Síða 33
KIRKJURITIÐ
319
er að efnagreina og lýsa vísindalega. En það er jafn raunsatt
séð úr fjarlægðinni sem blá liæð, skreytt skini og skuggum,
tákn fegurðar og mikilleiks, vekjandi vona og drauma.
Boðskapur liljómlistarinnar er sannur, þótt hann sé miklu
skildari og eðlislíkari hoðskap trúarinnar en vísindanna.
Það er satt að trú og vísindi eru sittlivað.
En liitt er ósannað, að þegar lengst er rakið standi trúin á
nokkuð veikari grunni en vísindin.
Um livort tveggja gildir, að enginn getur til fulls um þau
dæmt, nema þeir, sem reynt liafa.
Það er jafn ótækt fyrir óblandinn efnishyggjumann, þótt
ágætur vísindamaður kunni að vera á vissu sviði, að fordæma
trúna, og lieitum og einlægum trúmanni er óleyfilegt að tala
niðrandi um vísindi, sem hann ber ekkert skyn á.
Allir ættu að geta skilið, að trú og vísindi eru tvær leiðir
að sama markinu: fyllri þekkingu.
Gró’Srarstöfivar
Gróðrarstöðvarnar geta verið með ýmsu inóti og gerðar í
margs konar tilgangi. Sœnska kirkjan í fortíð og nútíð, heitir
fróðleg hók, sem gefin var út í fyrra í tilefni af aldarafmæli
dótturkirkjunnar vestan liafs. Biskuparnir þrettán skrifa þar
hver um sitt hiskupsdæmi. Það kemur upp úr kafinu, að furðu
margt er líkt með kirkjulífinu þar og hér. Höfuð örðugleik-
arnir þeir sömu og afstaða og úrræði furðu lík. Eins og gefur
að skilja, stendur ])ó þessi stóra bræðraþjóð oss sums staðar
miklu framar á þessum vettvangi sem öðrum. Athyglisverðast
fannst mér að lesa um hinar kristilegu aflstöðvar, sem komið
hefur verið á fót í flestum biskupsdæmunum, síðustu árin.
Hér er um inargs konar starfsstöðvar að ræða, sem reknar
eru á sama stað. Stundum liafa forn stórhýli eða hallir verið
keyptar til þessara nota, annars staðar eru byggingarnar reist-
ar af grunni. Meðal annars eru jiarna haldin fjölbreytt fræðslu-
náinsskeið um trúmál og kristilega starfsemi, þar á meðal
h'knarstörf í söfnuðunum. Jafnframt geta menn leitað þangað
lil kyrrlátra læ.rdómsiðkana, líkamlegrar hvíldar og andlegra
hugleiðinga — hvort lieldur ungir eða gamlir. Þetta eiga að
vera gróðrarstöðvar menningar og inannúðar, vakningarstöðv-