Kirkjuritið - 01.02.1969, Blaðsíða 40
BERNHARÐUR GUÐMUNDSSON INGÞÓR INDRIÐASON
AÐ INNAN OG UTAN
Gu8 og heimurinn. Nú undanfarið liefur mikið verið rœtt og
ritað í lieimi guðfræðinnar um „veraldlega trú“ og „dauða
Guðs“. Mikið flóð hóka um þessi, eða skyld efni, hefur komið
i'it. Frægastar eru þó bækurnar „Honest to God“, eftir John
A. T. Robinson og „The Secular City“, eftir Harvey Cox.
Þýzku guðfræðingarnir R. Bultmann og D. Bonlioeffer konia
einnig hér við sögu.
Hið sígilda viðfangsefni guðfræðinnar er að túlka boðskap
Bihlíunnar liverri samtíð. Þetta verkefni er ákaflega erfitt á
okkar tímum. Kirkja og kristni er viðskila við heiminn og
meira en það, á í miklum erfiðleikum að ná nokkru sambandi
við liann. Menn spyrja af mikilli alvöru, hvernig megi komasl
með hoðskap Krists til nútímans, sem þarf hans svo mjög
með.
Margir guðfræðingar vilja fara varlega, lialda sig við orða-
lag og túlkunarmáta Biblíunnar og þó fremur liefðbundna
túlkun kirkjunnar. Þeir segja sem svo, að fólk verði að konia
til móts við Krist og boðskap lians í ritningunum og leggja
sig eftir innihaldi þeirra. Aðrir eru djarfari og vilja ganga
til móts við samtíðina, endursegja og yfirfæra meiningu Biblí-
unnar á máli og með hugsunarhætti nútímans. Þeir segja, að
ekkert gagni að tala til fólks með orðalagi Biblíunnar, slíkt
tal veki engan skilning, liehlur þvert á móti misskilning og
sé fagnaðarerindinn til hindrunar. Þeir hinir sömu benda og
gjarna á það að líkt sé farið með starfsliætti, uppbyggingu, og
kenningarkerfi kirkjunnar, allt sé þetta orðið fagnaðarerindi
Krists að fjötri.
Yíst eru margir, sem sjá að nýrra átaka er þörf, að nýif
starfsliættir geta verið gagnlegir og að kristnir menn verða
að vera vakandi og frjóir í túlkun sinni og liugsun. En sain-
stundis stöndum við frammi fyrir miklum vanda og mikilh
ábvrgð. Hverju á að breyta og hvernig? Hvernig verður boð-
skapur Krists túlkaður okkar samtíð, þannig að ekki tapist
af eða spillist innilialdið?