Kirkjuritið - 01.11.1969, Síða 20
Gunnar Árnason:
Pistlar
LífiS hlýtur afí haja tilgang
Þetta er heiti smábókar en efnisríkrar. Höfundurinn er dr-
Viktor E. Frankl, arftaki Freuds aft' kennaraskólanum í Wien?»
en fer aðrar leiðir. Einn aðalhöfundur nýrrar geðlækningí*"
stefnu, sem kallast logoterapi. Logos þýðir bæði meining °r
andi. Gordon W. Allport, sálfræðiprófessor í Harvard, kveðm
þessa stefnu í nánum tengslum við liöfuðsjónarmið existientah
ismans (tilvistarlieimspekinnar): að lifa er að líða og að
lifa af er að finna meiningu í þjáningunni. Verður nánai
vikið að því síðar.
Bókin skiptist í tvo kafla. Sá fyrri nefnist: Fangabú
reynsla. Höfundur sat í fangabúðum Nazista árum sanian-
Hann lýsir því víti stóryrðalaust en lýkur því ógleymanlega
upp. Bregður upp dagljósum myndum af ytri aöstæðum °r
aðbúnaði og veitir líka innsýn í liugskotin.
Á leiðinni til höfuðákvörðunarstaðarins stanzaði fangalestm
á stöð þar sem torkennilegar byggingar risu í þyrpingu. f,a'
var liópnum skipt. Verðirnir vísuðu sumum og þ. á. m. Frankl
til hægri, en þó miklu fleirum til vinstri. I þeim hópi voi*1
lasburðamenn og sjúkir, sem reknir voru í átt til fyrrnefndia
stórhýsa. Víða blöstu þar við „baðskilti“ eftir því sem Frankl
fékk að vita síðar. Um kvöldið spurði hann einn samfanga sinna
hvað hefði orðið af félaga sínum P. „Var lionuni vísað í hina
áttina?“ „Já. Þú sérð hann þá þarna,“ var sagt. „Hvar-
Einhver benti á svarta reykjarmekkina, sem gusuðust upp 111
reykháfunum í tæpri hundrað metra fjarlægð.
„Hann svífur þarna til himins,“ var hin kaldræna útlistu1'-
— Baðið var inngangur gasklefans.