Kirkjuritið - 01.06.1971, Blaðsíða 14
Gloria in excelsis Deo
Laudamus te
Adoramus te
Glorificamus te
Margir listamenn hafa þjónað kristinni kirkju fró upphafi. Hús safn-
aðarins hefur tíðast verið lítið listasafn og tónahöll. Ritningin er þrot-
laus uppspretta fegurstu verka í bókum, tónum og litum. íslenzk
lista- og bókmenntasaga er að mjög miklu leyti saga kirkjulegrar
listar og bókmennta. Þeir tveir þœttir, sem hér fara nœstir, svo oQ
grein dr. Róberts A. Ottóssonar, mœttu gjarna vekja til íhugunar
um þó dýru þjónustu, sem þannig hefur unnin verið Guðs kristni ó
íslandi — kynslóð af kynslóð, — oft í auðmýkt nafnleysis. Það er
ekki af ósetningi, að þrír af fjórum, sem hér eru leiddir fram fyrir
lesendur, eru af erlendu bergi brotnir. En það mœtti gjarna minna
ó, að list kirkjunnar er í senn þjóðleg og alþjóðleg — líkt og hún
sjólf. Kvíslar erlendra strauma frjóvga íslenzka hugarmold. Þegar
Guð gerir ísland að fyrirheitnu landi þeirra, sem miklum gófum ere
gœddir, og fœr þeim starfa ó akri sínum hér hjó oss, þó skuldum vér
honum þakkir. Vakin skal athygli ó því, að kópumynd sú, sem nú
prýðir Kirkjuritið, er verk frú Grétu Björnsson.
12