Kirkjuritið - 01.06.1971, Blaðsíða 46
4) Mjög er sennilegt, að Ögmundur
kalli Gizur til sín í Skólholt sumarið
1535, eftir að hafa fylgzt með högum
hans nœstu órin áður. Það sumar
kjöri hann Sigmund Eyjólfsson, syst-
urson sinn, til biskups eftir sig og
sendi hann utan til vígslu til Niðar-
óss. Þar með taldi biskup sig hafa
tryggt framhald hins gamla siðar í
Skálholti.
Hins vegar þurfti hann mjög að-
stoðar við um rekstur stólsins og
reikningshald, enda sjálfur tekinn að
gamlast. Má því telja ofur eðlilegt,
að hann kalli til starfa hjá sér Gizur
Einarsson, sem hann áður hafði stutt
til mennta.
Gizur hlýtur að dveljast nokkurn
tíma í Skálholti, því að Ögmundur
vill eflaust sjálfur fylgjast með hon-
um. Og nokkurn tíma tekur fyrir Giz-
ur að vinna aftur fullan trúnað Ög-
mundar. Engin ástœða er því til að
draga í efa frásögnina af vetrardvöl
Gizurar í Skálholti.
5) Gizur Einarsson hlýtur að fara ut-
an sumarið eða haustið 1536. Þegar
Ögmundi berst fregnin um andlát
Sigmundar biskups það 'vor, hrynja
allar framtíðarácetlanir hans í rúst.
Honum er brýn nauðsyn að ná sem
fyrst aftur sambandi við erkibiskup
í Niðarósi. Þess vegna sendir hann
trúnaðarmenn sína á fund hans. For-
ysfa þeirrar ferðar er falin Gizuri
Einarssyni. Fátt sýnir betur traust Ög-
mundar biskups á honum en þessi
sendiför.
Og ferðin hlýtur að vera farin
seinni hluta sumars eða haustið 1536.
Ögmundi lá á að ná sambandi við
yfirmann sinn, og erkibiskup dvald-
ist ekki í Niðarósi nema þrjá fyrstu
mánuði nœsta árs. Hann flýði land
1. apríl 1537 eins og áður er frá sagt.
VI.
Af þessu má Ijóst vera, að ég tel
fráleitt, að unnt sé að þjappa at-
burðum svo saman sem reynt hefur
verið. Hér er um að rœða atburði átta
ára, ef við á annað borð tökum trú-
anlegt nokkuð af því, sem síra Jón
Gissurarson segir í Biskupaannálum
sínum.
Seinna árið, 1537, er augljóslega
rétt. Giztur hlýtur því að koma heim
ekki síðar en 1532. En þá getur hann
ekki siglt utan til náms árinu áður,
1531. Og bréf hans frá Hamborg til
Ögmundar getur ekki verið ritað
sama ár og hann kom aftur heim.
Hvað er þá að segja um þetta
bréf? Er dagsetning þess örugglega
rétt? Er það ritað fyrsta vetur Gizurar
Einarssonar í Hamborg?
Ástœða þess, að menn hafa talið
bréf Gizurar Einarssonar, sem hann
ritar Ögmundi biskupi í Skálholti,
bœði rituð á fyrsta vetri hans ytra,
er sú, að hann í seinna bréfinu segir
fréttir af dvöl sinni þar ! borg og
kennurum þeim, er hann hefur fengið.
Einnig segir hann frá námi s!nu og
fleiru. Fyrra bréf hans er aftur á móti
efnislaust að mestu. Hvers vegna rit-
aði Gizur Einarsson á latínu, en ekki
íslenzku eða lágþýzku, sem hefði þó
verið honum auðveldara?
Mér hefur komið til hugar, hvort
hér gœti ekki alveg eins verið um að
rœða einhvers konar latneskar stíl-
cefingar, sem fremur eru ritaðar til að
44