Syrpa - 01.03.1912, Page 23

Syrpa - 01.03.1912, Page 23
ORUSTAN VIÐ HASTINGS. Eftir PÁL MELSTED. I. A Ð er upphaf þessa máls, að Játvaröur konungfur lá sjúkur og var nær kominn dauöa. Það var um jólaleyti áriö 1065. Var þar margt stórmenni saman komiö, og margur meö þungum áhyggjum,því aökonungurinn var barnlaus,og eng- inn á lífi af hinni gömlu konungs- ætt, nema Játgeir, sonar sonur Ját- mundar járnsíöu, en hann var barn að aldri, og eigi tiltök aöhefjahann til konungdóms, fyrir þá sök, aö tveir ofureflismenn stóðu á móti, Tosti jarl og Vilhjíilmur hertogi af Normandíi, er báðir vildu konttngar veröa yfir Englandi, hvenær sem Játvaröar misti við. En einn mað- ur var sá á Englandi, er að flestra rómi þótti fær um að erfa ríkiö eftir Játvarð konung; sámaðurvar H a r- a 1 d u r jarl G u ð i n a s o n. Hann var manna bezt til höföingja fa'linn, hann var hermaöur hinn mesti og hraustur í orustuni og hafði um mörg ár undanfarin liaft stjót n rík- isins á hendi, og farið vel nieð, þótt Játvaröur bæri konungs nafniö. En Haraldur var eigi af konungsætt- inni, og fyrir því hugðu margir, aö fjandmenn ríkisins mundu neyta færisins og vekja nýjan ófrið þar í landi. Það var 5. janúar 1066, að Játvaröur konungur vaknaði sem af svefni og haföi ráö alt og rænu. Viö rekkju hans stóöu þeir sinn hvoru megin, Haraldur jarl og Stíg- andi erkibiskup, tveir hinir æðstu menn í ríkinu; viö fótagaflinn sat Gyða drotning, systir Haraldar jarls. Jafnskjóttsemkonungur rakn- aði viö baðst hann fyrir og því næst lét hann kalla til sín þá af vinum sínum er viöstaddir voru og sagöi þeim frá því, er fyrir hann haföi boriö, en þeim fy'rirburði fylgdu þau orö: ,,áður en ár er liðið frá dauöa þínum munu óvinir þínir vaöa yfir ríki þitt landshorna í millum og fara með ráni og manndrápum“. öllum þeim, er heyröu þessi orö, fanst mikiö um, nema erkibiskupi. Hann var einn af hinum stórgeröu biskupum, sem vér hittum öðru- hverju í sögu Noröurlanda. Hann lagöi lítinn trúnað á þaö, sem al- þýöa manna kallaði tákn og fyrir- buröi, og svo var um þetta. Hann hvíslaöi aö Haraldi jarli og sagöi, að konungur væri svo sjúkur, aÖ liann vissi eigi hvaö hann segöi. Nú voru gÓÖ ráö dýrmæt, og nú var um annað aö hugsa en um óráðs orö konungsins. Það varð eigi hjá því komizt, aö leggja þá spurningu fyrir konunginn, er varðaöi alt Eng land, þótt hann væri kominn í and- látiö. Þegar konungur haföi minzt á útför sína, og þakkaö vinum sín- um og vandamönnum trygö og holl- uslu viö sig, spuröu þeir Haraldur og Stígandi hann, hver vera skyldi

x

Syrpa

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Syrpa
https://timarit.is/publication/499

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.