Syrpa - 01.03.1912, Blaðsíða 40

Syrpa - 01.03.1912, Blaðsíða 40
166 SYRPA haugnum og'flutttil Valthamsklaust- urs í Essex — skamt fyrir norðan London, og jarðaö þar, en enginn veit nú hvar legstað hans er aö finna. Með því að vinna orustuna við Hastings og n& yfirráðum á Eng- landi, lagði Vilhjálmur bastarður grundvöll þann, er hið víðlenda og volduga enska ríki hefir síðan verið bygt á. Alt til hans daga höfðu Englendingar verið sundurþykkir sín í milli, hver sveitin að kalla upp á móti annari, og landið jafnaðar- lega sætt árásum af útlendum þjóð- um. En með Vilhjálmi hefst á Englandi hið volduga ríki, er vex út yfir írland og Skotland, þegar fram liðu tímar, og enskar nýlendur rísa á fætur hér og livar um allar heimsálfur. Norænir víkingar hætta alveg árásum á England, þegar Vil- hjálmur er orðinn þar fastur í sessi. Fyrir daga hans hafði England ver- ið eins og eitt sér og utan við al- menn málefni Norðurálfunnar. En á hans stjórnarárum dregst það inn í málefni meginlandsþjóðanna; hin enska þjóð gjörist umsvifamikil, og kemur þá einatt til afirauna með þeim nábúunum,Englum og Frökk- um. Áður höfðu Englands kon- ungar því nær aldrei gjört samn- inga við annara þjóða konunga, eða fengið sér drottningaraf meginlandi; en nú lærðu Englendingar af Nor- mönnum að hafa allskonar sam- blendi við allar þjóðir í Norðurálfu. Verzlun höfðu Englendingar áður átt eingöngu við Þjóðverja, nú varð sú breyting á því, að verzlunin varð mest milli Englendinga og kaup- staðanna á Normandíi. Ollu fór að fara fram á Englandi: hús voru þar áður lítil og lá og flest af viði ein- um, nú urðu þau öll stærri, skraut- legri og af steini gjörð; akuryrkju fór stórum fram, og efni manna vaxandi; nýtt og nytsamlegt skipu- lag komst á ýmisleg þjóðmálefni (t. a. m. kviðdómar), er aðrar þjóð- ir hafa síðan tekið í lög hjá sér. Vísindi og fagrar listir tóku fram- förum, enda studdu eftirmenn Vi’- hjálms rækilega að því, að afreks- verk konunganna oghelztu viðburð- ir innanlands yrði ritað á bækur. Loks má geta þess, að sigur og yfirráð Normanna höfðu hin mestu áhrif á tungumál Englendinga. Áð- ur en Vilhjálmur vann England var þar töluð tunga Engilsaxa, að upp- runa náskyld dönsku og þýzku, en með dönskum víkingum höfðu mörg orð og orðatiltæki borizt til Eng- lands og voru runnin saman við landsmálið. Með yfirráðum Nor- manna náði einnig frakknesk tunga yfirráðunum, þar sem hún var töluð við hirðina, af öllu stórmenni og varð ritmál. Alþýðan talaði að sönnu engilsaxnesku eins og áður, en samt má nærri geta, hver áhrif frakknesk tunga hafi haft á lands- málið. Af þessu samblandi tungn- anna myndaðist síðan, þegar fram sótti í aldirnar, hin enska tunga, er geymir í sér leifar af tungumálum allra þeirra þjóða, er að því hafa unnið, að koma fótum undir þjóð þá, er nú byggir England. (Ur Tímariti hins ísl. bókmentafél.)
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Syrpa

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Syrpa
https://timarit.is/publication/499

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.