Syrpa - 01.03.1912, Síða 39

Syrpa - 01.03.1912, Síða 39
ORUSTAN VIÐ HASTINGS 165 aS, er þeir áöurvoru. Margirþeirra komust á hól þann, er áður var nefndur, og vörðust þaðan, og kom liann þeim nú að góðu gagni; féllu Frakkar drjúgum í þeirri viðureign. En meðan þetta gjörðist, og Eng- lendingar og Frakkar börðust í smáriðlum niður á láglendinu náði meginher Normanna uppgöngu á hálsinn, að likindum þar sem brekk- an er minnst, skammt þar fyrir vestan,sem klaustrið var síðan reist. Það var um nónbil, er Normenn náðu uppgöngu á*hálsinn; hafði þá orustan staðið um 6 stundir; en þó að Normenn ætta nú hægra en áður til aðsóknar, var samt mjög tvísýnt um sigurinn; hvorirtveggja börðust af miklum ákafa og unnu margt hreystiverk. Hörðust var orustan þar sem Haraldur var, og þangað sótti nú allur her Normanna. Þá var níjög liðið á dag. Vilhjálmur bauð bogmönnum sínum, að skjóta örvunum í loft upp; til þessþærfélli niður í höfuð Englendinga. Svo var nú gjört, og varð þeim það að miklu tjóni. Orvarnar gengu gegnum hjálmana, margir fengu skot, í augun og biðu bana. Var nú mikil aðsókn að merki Haraldar konungs. Hann var enn ósár, en skjöldur hans var skúfaður af örvum Normanna. Þá flaug ör ein og kom í hægra auga konungi, öxin féll úr hendi hans og hann hneig niður lijá merkistönginni.og lá þar litla stund í fjörbrotum, en þá þustu að fjórir af riddurum Normanna og veittu konungi banasár. En þótt Harald- ur konungur væri fallinn, börðust menn hans, þeir er uppi stóðu.með- an dagur vanst til. í þessari orustu féll flest alt stór- menni sunnan og austan af Eng- landi, því að enginn vildi á flótta hyggja, og enginn beiddist griða. En nokkrar sveitir af hinu léttvopn- aða liði Haraldar leituðu undan þá er myrkrið datt á. Veittu Nor- menn þeim eftirför, en lentu í ó- göngum þegar er hálsinum sleppti, misstu nokkra menn og sneru við það aftur til orustustaðarins. Uppi á hálsinum, þar sem orustan hafði verið hörðust og mannfallið mest, var ógurlegt um að litast; jörðin var þakin mannabúkum, svo þús- undum skifti, flestir dauðir en marg- ir særðir til ólííis. Jafnvel Vilhjálmi liertoga fannst mikið um þá sjón. Þar lét hann reisa merki sitt, er tákna skyldi sigurinn, og þar lét hann fyrirberast í tjaldi sínu um nóttina, en mannabúkarnir lágu alla vega út frá tjaldinu. Liðsmenn hans héldu vörð alla nóttina. Dag- inn eftir lét hertoginn kanná valinn og jarða þá er fallið höfðu af hans mönnum. En frá næstu héruðum komu konur margar, og beiddust að fá líkami manna sinna, sona og bræðra, og það veitti hertoginn þeim. Gyða*) móðir Haraldar kon- ungs kom einnig, hún hafði í orustu þessari misst þrjá sonu sína— Har- ald, Gyrði og Leofwine. — Hún beiddist að fá lík Haraldar sonar síns og bauð jafnvægi þess í gulli, til þess að það fengi leg í vígðri jörð. En Vilhjálmur kvað eigi sæma, að eiðrofsmaður hvíldi í helgum reit, og var hann lagður í haug við flæð- armál. Nokkrum árum síðar, þá er Vilhjálmur hafði unr.ið alt Eng- land og friðað það að fullu, leyfði hann að lík Haraldar væri tekið úr *) Gyða var systir Úlfs jarls föSur Sveins Danakonungs Úlfssönar (+ 1076).

x

Syrpa

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Syrpa
https://timarit.is/publication/499

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.