Syrpa - 01.06.1912, Síða 10

Syrpa - 01.06.1912, Síða 10
V O R H R E T smásaga e-ftir JÓHANNES FRIÐLAUGSSON. Sólin skein inn um gluggann. “FarSu nú aö vakna! Vaknaöu, vaknaöu! Klukkan er oröin tíu, og þú gleymdir í gær aö búa þig undir daginn í dag me‘ö ræöuna.” Hað var prestskonan á Stað, sém var að v ekja manninn sinn með morg- unkaffinu á sunnudaginn í þriðju v ku sumars. Annars var hún æfinlega kölluð “frúin”. Hún leið aldrei heim- ilisfólkinu að kalla sig annað en “frúna” eða þá frú Sigríði. En af því að það var lengra, kölluðu menn hana bara “frúna”. Og þegar talað var um hana á bæjunum í kring, var hún æfinlega köl!uð “Staðar-frúin” eða “frúin á Stað.” Það voru rétt cinstöku strákar, sem höfðu það til að kalla hana “öskufrúna” eða “griðkonu frúna”. Iiún hafði verið eldhús- stúlka hjá séra Pétri fyrsta sumarið, sem hann var prestur á Stað. Hún sagði að vísu vinstúlkum sín- um, að hún hefði verið ráðskona. En það var þó leyndarmál, sem allir í sveitinni vissu, að móðir prests'ns réð öllu á heimilinu það ár, og í raun og veru alla þá tíð. sem hún lifði, þótt séra Pétur væri giftur. Það var sagt, að hún hefði einlægt litið heldur smá- um augum á tengdadótturina. Ráðs- mennska frúarinnar hafði þá, eftir því sem kerlingarnar sögðu, að eins náð yfir eldhúsverkin fyrsta árið, og þess vegna hafði öskufrúar nafnið fest við hana. Seinnipart vetrar hafði svo verið farið að lýsa með ungfrú Sigríði Grímsdóttur á Stað og séra Pétri Jónssyni samastaðar. Og um sumarmál giftu þau sig, til mikillar gremju fyrir flestar heimasæturnar í sveitinni, því að á rneðan að séra Pét- ur var ógiftur, vonuðu þær allar, að þeim mundi takast að verða þe'rrar hamingju aðnjótandi að verða frúin á Stað. En svo kom það fyrir, að hún Sigga á Stað tók bitann frá munnin- um á þeim öllum. ‘íHún langa Sigga —hún mjóa Sigga — ösku S'gga. Sig- ríöur, sem átti ekkert. ekki einu sinni fötin utan á sig. Og svo hafði hún verið trúlofuð áður, víst einum tvisvar sinnum”, sögðu þær sem reiðin sauð mest í út af öðru eins hneyksli og því að hún skyldi vera oröin frúin á Stað, eins og þær komust að orði. Þær gátu varla um annað talað fram eftir sumr- inu, en svo fór það að dofna. En svo fékk það aftur fæturna á jólaföstunni. þegar prestshjónin eignuðust hann —Jón litla. “Já, ekki nema 32 vikur eftir gift nguna. Nei, 32 vikum og 4 dögum frá giftingunni”, sögðu þær sem bezt voru að sér í reikningnum.

x

Syrpa

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Syrpa
https://timarit.is/publication/499

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.