Syrpa - 01.06.1912, Side 64

Syrpa - 01.06.1912, Side 64
254 SYRPA hjli okkur á morgun eöahinn dagfinn. Nú með því að rauðaviðar líkkisturnar eru dýrustu munirnir hjá okkur, þá dyrfist e" að biðja þig að g'eyma þessa í þínum hýbýl- um, þangað til fjárnám er afstaðið. Eg treysti þér til að gera inér þann greiða, góði vin. Eg ætla að koma öðrum fyrir í herbergjum hjá kunningjum okkar beggja. Alla tíma þinn, Sergius Bobinskv DRAUMUR. Það var í september 1910, er mig dreymdi draum þann er hér fer á eftir. Eg hafði þá lesið eitthvað um það í dagblöðunum að halda ætti minningarhátíð Jóni heitnum Sig- urðssyni til heiðurs. Ekki var mik- ið um þetta rætt meöal vor , ,Tanga- búa11'*'), og eg sjálfur lét mig það litlu skifta. Eg hefi í sannleika sagt, alt af haft sáralítið dálæti á þessum pólitísku stórmennum, enda þótt þau tilheyrðu minni eigin þjóð. Þetta sem eg las um undirbúning liátíðarinnar hreif mig því á engan hátt.eða festist neitt verulega í huga mínum. Frá þessháttar áhrifum getur því ekki draumur þessi stafað. Það skal enn fremur tekið fram,að eg sá aldrei Jón heitinn Sigurðsson í lifanda lífi, en að eins nokkrar myndir af honum er voru í öllu veru- legu mjög líkar hvor annari. Mynd þá af Jóni er kom i ,,Nyjum Kvöld- vökum“ sá eg eigi fyrr enn mörg- um mánuðum eftir að mig dreymdi drauminn, —en einmitt í því gerfi birtist hann mér í svefninum. Af því varð mér erfiðara að þekkja hann, en ella. *) Við Wiunipegosis-vatn. Eg þóttist vera staddur í stórhýsi einu. Það sneri frá austri til vest- urs. Breidd hússins fanst mér að ekki myndi vera yfir25 fet,en lengd- in var afskapleg. Það var fagur- lega skreytt að innan, og uppljóm- að með ljósum, þó ekki nema til endannu. Um miðbikið alt var liálf- rökkur. Nótt var ylir jörðu. Þar var fjöldi fólks samankomin og hélt það sig alt í austur og vestur enda byggingarinnar, þar sem birtan var mest'; en á hinu auða svæði sást engin mannvera á ferli. Mannfjöld- inn var miklu meiri í austurendan- um, og þar virtist vera miklu meiri gleðibragur á öllum, enda hélt eg mig allnærri þeim hópnum, ogveitti honum því nánari eftirtekt. Eg vissi að fólkið var hér saman komið til að halda hátíðlega minning Jóns Sigurðssonar, og alt var það prúðbúið. í hinu auða rúmi, og skamt frá eystri hópnum, sá eg sitja aldraðan mann út við norður-hliðvegg bygg- ingarinnar. Sá hafði silfurhvítt skögg og hár. Svipurinn fanst mér dapur,raunalegur og eins og líðandi.

x

Syrpa

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Syrpa
https://timarit.is/publication/499

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.