Nýjar kvöldvökur - 01.09.1908, Blaðsíða 23
SMÆLKI.
215
Á blikandi norðljósa bogum
eg berast mun glaður
hátt yfir fjöllin mín fríðu
og fagnandi skoða
æskunnar indælu staði
með andasjón skýrri.
— Drottinn, þar dáist eg hrifinn,
að dýrð þinni og veldi,
Jón Guðmundsson.
Smælki.
Svefninn og vinnukrafturinn.
Læknir nokkur þýzkur, Weggandt að nafni,
hefir gert tilraunir á sjálfum sér til þess að
vita, hvað svefninn hefir styrkjandi áhrif á
manninn. Hann settist við að leggja saman
einstafaðar tölur, og skrifa upp niðurstöðurnar,
bæði á kvöldin, áður en hann fór ad hátta,
á nóttunni eftir 1 — 5 stunda svefn, og svo á
morgnana eftir nokkurru lengri svefn. Hann
hafði klukku, sern hringdi á hverri mínútu, og
gat hann því séð, hverju hann kom af á hverri
mínútu. Hann kom Iangminstu í verk á kvöld-
in, en mestu eftir hálfrar stundar svefn; nætur-
tilraunirnar gengu lakara en morguntilraunirnar.
Svo gerði hann aðra tilraun erviðari. Hann
setti sér fyrir að læra tólfstafaðar tölur utan-
bókar; þegar hann var búinn að festa eina tölu
vel á minni, tók hann þá næstu fyrir, og merkti
svo tölu tilraunanna fimtu hverja mínútu. Sást
þá brátt á, að kvöldvinnan var lélegust, en
morgunstörfin gengu góðum mun betur en
næturtilraunirnar.
Af þessu má sjá, að það sem þungt er
eða erfitt heimtar meiri svefn en það sem létt-
ara er. Pess má og geta, að hann tók eftir
því, að hann átti örðugast að halda sér við
efnið á morgnana; hugurinn vildi fljúga víða
°g leita margs. Á nóttum var hann aftur full-
ur deyfðar og leiða, og hugurinn svo þreytt-
ur, að hann flaug ekki til annars, en hélt sér
við efnið.
Morguninn virðist því bezti vinnutími við
alt það, sem hugsunar þarf með.
Blað eitt á Englandi stofnaði til atkvæða-
greiðslu um það í fyrra, hver stórmenni Eng-
lands ætti þar mestan sóma skilið af þjóðinni,
og hljóta legstað í Westminster kirku; en þar
eru mestu ágætismenn þjóðarinnar jarðaðir.
Síðan var skráin gefin út yfir atkvæðagreiðsluna.
Efstur á blaði varð Shakespeare; næstir honum
voru Wellingtön, Nelson, Chamberlain, Dickens
og Cecil Rhodes: Á skránni voru 32 nöfn, en
eigi nema 2 vísindamenn, Darwin og Newton.
Var Darwin 16. í röðinni en Newton 25.
Listar sem fann upp rotvörn í sáralækning-
um og holskurðum, og vafalaust má telja einn
af mestu velgerðamönnum mannkynsins, kom
þar ekki til greina. Frakkar kunna betur að
meta vísindin. Franskt blað eitt stofnaði til
svipaðrar atkvæðagreiðslu; varð Pasteur þar
efstur á blaði, en Napoleon mikli varð ekki
nema 4. í röðinni.
Steinolígnægtir Ameríku er sagt að fari
þverrandi. Bæði er farið að minka um steinolíu
í gömlu olíuhéruðunum, ,og svo er farið að
minka um hana í nýju olíulendunutn í Texas
og Louisiana. Árið 1905 fengust þar 40,6 milj.
barrils (1 barril er 163'/2 h'tri eða rúmlega l1/s
tunnu), en 1906 aðeins 19,7 milj. barril. Ann-
ar landshluti einn gaf af sér 3x/2 miljónirbarr-
ils í júnímánuði 1905, en slíkt eru líka eins
dæmi, en í febrúar 1909 fengust þar aðeins
8000. Petta ætti að verða vatn á mylnu Rússa,
og ýta undir þá að vinna hinar nýju steinolíu-
lindir sínar.
Sigurhœðctvísur.
Æfi minnar skríð eg skei ð,
skeikull stefnu naumast ræð.
Af því gefst mér örðug leið
upp á bjarta Sigurhæð.
Fast eg þrái fram í deyð,
freisting mig þó ginni skæð,