Nýjar kvöldvökur - 01.01.1950, Side 13
N. Kv.
SVAVA JÓNSDÓTTIR I.EIKKONA
3
leika, er frú Svava Jónsdóttir.
Ung að aldri, nýlega fermd,
túlkar hún hlutverk á leik-
sviði. Leiksviði, sem að vísu
var lítið og frumstætt í’ litlu
leikhúsi. En þá þegar koma J
fram listrænir hæfileikar hjá
henni, og liún er dáð af áhorf-
endum. Og eftir það fær hún
ást á leiklistinni og löngun til
þess að þjóna henni. En það
var með hana eins og flesta
aðra listamenn hér á landi allt
fram að síðustu árurn, að þeir
hafa aðeins getað þjónað list-
grein sinni í frítímum sínum
frá daglegum önnum og án
launa, eða þeirra mjög lítilla.
Hún varð gift kona og móðir
og þurfti að sjá um heimili,
en áhuginn fyrir leiklistinni
dvínaði ekki fyrir það. Hún
hefur í 50 ár farið með fjölda
mörg hlutverk á leiksviði.
Hlutverk, sem hafa verið
margbreytileg, allt frá ungum
og fögrum ástmeyjum, gáska-
fullum griðkonum, fíngerðum
frúm af mörgum gerðum, og
til förukerlinga og kvenn-
norna. Og þótt henni jafnan
sómi bezt á leiksviði að vera
skartklædd og fögur eins og
kóngsdóttir í æfintýri, eða
hefðarkona í hirðsölum eða
jafnvel drottning, að vera
mild, blíð og höfðingleg, þá
fatast heldur ekki skilningur hennar, er
hún leikur vonsvikna konu, sem örvæntir,
förukonu, sem betlar eða gefur óreyndum
mönnum ráð, eða versta kvenskass og norn.
Þeim, sem þekkja frú Svövu, mun finnast
ólíklegt, að hún geti breytt sér í gerfi hinna
síðasttöldu kvenfulltrúa, hafi þeir sjálfir
ekki séð hana gera það. En hún hefur sýnt,
Frú Svava Jónsdóttir í „Dúfuunginn".
að hún getur svo gersamlega skilið við sjálfa
sig og farið í hvaða kvenham, er henni sýn-
ist. Htin er að því leyti lík galdrakonum,
sem sagt er frá í ævintýrunum.
Frú Svava er ævinlega heilsteypt lista-
kona. Hún er listakona á heimili sínu, og
hún er listakona þegar hún er komin á leik-
svið. Þar fatast henni aldrei. I 50 ár hefur
1*