Nýjar kvöldvökur - 01.01.1950, Síða 14
4
SVAVA JÓNSDÓTTIR LEIKKONA
N. Kv.
hún af fjöldamörgum leikhúsgestum verið
dáð, sem ein af fremstu lcikkonum íslands.
Til þess að geta leyst af hendi margvísleg
hlutverk á leiksviði, þarf miklar gáfur,
glöggan og djúpan skilning, þjálfaðar ltreyf-
ingar, þjálfað skaplyndi og þó fyrst og
fremst ást á listgrein sinni.
Leiklistin er göfug list. Hún er sterkur
þáttur í menningu allra mikilla menningar-
þjóða.
Þetta bæjarfélag hefur verið svo heppið
að verða heimkynni ekki svo fárra bók-
mennta og listamanna, er margra mun
lengi minnzt verða. Frú Svava er framar-
lega í flokki þessara listamanna. Lista-
manna, er hafa ræktað hér akur fagurra
lista og auðgað þar með stórum þetta bæjar-
félag. Frú Svövu mun líka lengi verða
minnzt hér. Nafn liennar og starfssaga mun
geymast í listsögu Islands og í sögu Akur-
eyrarbæjar. Þar mun nafn hennar og minn-
ing verða óafmáanlegt. Því hyllum vér hana
Svava Jónsdóttir sem förukona á
„Oskastundin“.
Svava Jónsdóttir. „Skrúðsbóndinn".
í kvökl á 50 ára leikafmæli hennar. Þvx
þökkum vér henni í kvöld fyrir allar þær
yndisstundir, er hún hefur veitt oss og öðr-
um bæjarbúum í áratugi í leikhúsi bæjar-
ins. Vér árnum henni allra heilla og von-
um, að hún megi enn lengi lifa og túlka á
leiksviði mannlegar þrár og vonir, yfirsjón-
ir og sorgir.
Frú Svava Jónsdóttir! Þökk allra Akur-
eyriirga og alh'a listunnandi íslendinga!
FRAMHALDSSAGA.
Mai'gir lesendur N. kv. minnast oft lxinna
góðu og skemmtilegu sagna, senr komið
Irafi í N. kv. á þeim tíma, er séra Jónas
Jónasson frá Hrafnagili var ritstjóri þeirra.
í næsta lrefti N. kv. byrjar framhaldssaga,
er séra Jónas lrafði ætlað sér að þýða í
N. kv., en entist ekki aldur til. Saga þessi
er eftir Carit Etlar og Ireitir á dönsku
„Göirgeh övdingen".