Nýjar kvöldvökur - 01.01.1950, Side 19

Nýjar kvöldvökur - 01.01.1950, Side 19
N.-KV. ENDURMINNINGAR KRISTJÁNS S. SIGURÐSSONAR 9 sem mér var seinna sagt, munu þessi veik- indi hafa sljóvgað mig á margan hátt. Mér var sagt, að eg hefði verið að mörgu leyti frábært barn. Eg lærði fyrirhafnarlaust hverja vísu, sem eg heyrði, og allt, sem eg heyrði sungið, lærði eg þegar fljótt og vel. Enda man eg það, að eg unni söng fram yfir allt annað og hef gert það síðan. Eg hafði svo skarpa sjón, að til þess var tekið, og voru margar sögur af því sagðar, hvað eg sæi betur en aðrir. Skal hér aðeins tilfærð ein þeirra. Bærinn Hlíðarendi er að vestanverðu í dalnum, gegnt Kálfborgará. Breitt undir- lendi er beggja vegna fljótsins, því að báðir bæirnir standa uppi undir brekkunum. Var því all-langt á milli bæjanna. Svo bar við einn dag að sumarlagi í sól- skyni og blíðviðri, að við krakkarnir vorum úti á hlaði, og sáum við þá, að stúlka gengur frá bænum Hlíðarenda suður göturnar, sem liggja til næsta bæjar, Sandhauga. Segir þá einhver krakkanna, að stúlkan sé með hvíta skýlu og hvíta svuntu. Ekki vildi ég kannast við það, en sagði, að bæði skýlan og svuntan væru með stórum rauðum rósum. Út af þessu urðu stælur á milli okkar, því að eng- inn nema ég sá rauðu rósirnar, og hver hélt fast fram sinni meiningu, eins og vant er. Til þess að skera úr þrætunni voru síðan sótt þau pabbi og mamma og vinnukonan. Áttu þau að dæma um, hver rétt hefði fyrir sér. Gátu þau ekki betur séð, en að stúlkan hefði hvíta svuntu og skýlu. Eg stóð því einn með mína meiningu á móti öllum hin- um, en vildi þó ekki láta minn hlut og varð sárreiður. Til þess að friða mig, lofaði mamma mér því, að næst þegar ferð yrði frá Hlíðarenda, skyldi hún komast fyrir, hvert okkar hefði rétt fyrir sér í þessu máli. Einum eða tveimur dögum síðar erum við krakkar enn úti. Sjáum við þá, hvar stúlka kemur labbandi sunnan göturnar, og sé ég þegar, að þetta er sama stúlkan. Tek ég þá til fótanna, hleyp inn til mömmu og hrópa hástöfum með miklum fagnaðarlát- um: ,,Hún kemur, hún kemur! Og hún hefur rósótta svuntu og skýlu.“ Síðan kemur stúlka þessi heim og stendur við um hríð. Fær hún þá að heyra alla söguna. Sagðist hún hafa farið suður í dal til að heimsækja kunningjana .Fór hún þá suður með bæj- um að vestan, en út að austan. Og það man ég enn, að mikið var eg upp með mér af því að liafa unnið annan eins sigur ,því að hvort tveggja .svuntan og skýlan, var hvítt með stórgerðum, rauðum rósum. Þetta var áður en ég fékk barnaveikina. Síðan hef eg aldrei séð jafn vel og áður. En alla tíð hef eg séð tiltölulega betur það, sem langt er undan, heldur en það sem nær er. Ekki var hægt að jarða systur mína, sem dó úr barnaveikinni, fyrr en allir á heim- ilinu voru orðnir frískir aftur, og öruggt var, að veikin bærist ekki tit þaðan. Mér er sá dagur sérstaklega mnnisstæður af tveim ástæðum. í fyrsta lagi sökum þess, að þá var myrkur í barnssál minni, og einnig myrkur fyrir augum mínum. Eg var þá ekki búinn að fá fulla sjón, og ég grét mikið, þegar foreldrar mínir lögðu af stað í myrkri að morgni dags og drógu litla líkið með sér á sleða. Veitti þeim ekki af að fara snemma, því að langt var fram að Lundarbrekku-kirkju. — Annað, sem hefur gert mér dag þennan minnisstæðan, var setning, er stúlkurnar sögðu, þegar foreldr- ar mínir voru farnir. Einhver stúlka hafði komið til aðstoðar á heimilinu þessa daga, og man ég ekki, hver hún var. En vinnu- konan hét Sigurbjörg Jónatansdóttir. Var þeim auðvitað falið að hugga okkur krakk- ana og leika við okkur. En orð þau, sem önnur hvor þeirra lét falla, voru þessi: „Nú er bezt að lifa glatt, því að nú er hér hvorki guð né skrattinn.“ — Stúlkurnar gerðu allt, sem í þeirra valdi stóð til að leika við okkur og hafa okkur góð um daginn. En ég var alltaf að hugsa um, hvað þær hefðu getað 2

x

Nýjar kvöldvökur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Nýjar kvöldvökur
https://timarit.is/publication/511

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.