Nýjar kvöldvökur - 01.01.1950, Qupperneq 21

Nýjar kvöldvökur - 01.01.1950, Qupperneq 21
N. Kv. ENDURMINNINGAR KRISTJÁNS S. SIGURÐSSONAR 11 lega. Á meðan ég lá þarna, sá ég alltaf ó- freskjuna öðru hvoru, þegar ský dró frá tungli, og var skepnan alltaf á sama stað. Herði eg þá loks upp hugann og labba til baka, en ekki ætla ég að reyna að lýsa því, hvað ég tók þetta nærri mér. En þarna vann ég sigur mikinn, svo mikinn, að ég hef trauðla unnið annan eins síðan. Þetta var sem sé stærðar steinn, sem þarna stóð á sléttri grundinni, og höfðum við krakkarnir oft leikið okkur hjá honum. En svona get- ur hræðslan gripið mann, að hann þekki ekki aftur það, sem hann þó hefur daglega fyrir augum. Þegar ég loksins kom heim aftur, fékk ég ávítur fyrir, hvað ég hefði verið lengi að flytja. Sagði ég þá alla söguna, sigri hrós- andi, og sagðist aldrei skyldi verða myrk- fælinn framar. Og það rættist. Eg hafði sigrað myrkfælnina, og hef aldrei til hennar fundið síðan. Eg var víst snemma gefinn fyrir að gera ýmsar tilraunir upp á eigin spýtur. Man ég óljóst eftir því, að eg var oft eitthvað að bauka út af fyrir mig og vildi ekki, að aðr- ir vissu um. Ætlaði eg ekki að láta neinn vita um það, fyrr en eg væri búinn að gera það svo fullkomið, að alla ræki í rogastanz, er þeir sæu það. En það var nú ekki auð- gert að fela neitt fyrir forvitni systkina minna. Einu sinni fór mamma að heimsækja kunningjakonu sína, sem Helga hét og bjó á Hlíðarenda. Fór hún ein. Þetta var um vetur, ís á Fljótinu og færi gott. Eg vildi fá að fara með henni, en fékk það ekki. Þeg- ar hún var komin heim á bæinn og þar inn, sit eg um færi að fara á eftir henni, þegar enginn sæi til heima. Þetta gekk vel. Vissi enginn um mig, fyrr en eg kom inn í búr á Hlíðarenda, en þar sátu þær Helga og mamma. Var mér þar vel tekið, og ekki fékk eg neinar ávítur hjá mömmu. Fagnaði Helga mér vel, enda var hún orðlögð gæða- kona. Töfðum við þar nokkra stund. Eitt af því, sem þær konurnar töluðu um, var það, að eg væri ormaveikur. En það er líka það eina, sem eg man eftir af samtali þeirra, enda veitti eg því nákvæma eftirtekt. Mér er þessi veiki mín svo minnisstæð, að eg mun aldrei gleyma henni. Sennilega hef eg fengið hana af hundinum. Var þá ekki farið að hreinsa hunda, og voru oft sjáanlegir á þeim bandormar, Fékk eg alveg sams konar orma, og leið mér oft illa af þeim. Ollu þeir sífelldum kláða í enda- þarminum, og sá eg þá skríða á saurnum, sem eg lagði frá mér, og varð þá mjög hræddur. Einhverja hómopata-dropa mun eg hafa fengið við þessu hjá Jóni á Jarls- stöðum, en það reyndist gagnslaust. Nú hlusta ég á tal þeirra mömmu og Helgu um þetta. Segir Helga þá, að hægt sé að lækna þetta með því að blanda sóti í vatn og drekka það. Og þetta festi ég mér vél í minni. Þegar allir voru sofnaðir rökkursvefnin- um sama kvöldið, læddist ég fram í eldhús, kveikti þar á eldhúskolunni, náði mér síð- an í tréskál, sem mun hafa tekið um einn pott. Síðan klifraði ég upp á hlóðarsteininn og gat klórað þaðan dálítið af sóti ofan úr ræfrinu og hrærði Jaað svo út í vatni, og var þá hátt í skálinni. Og þetta góðgæti drakk ég síðan í einum teyg. Hryllir mig enn við, hvað þetta var vont. En með illu skal illt út drífa. Þegar fullorðna fólkið vaknaði aftur um kvöldið, lá ég eins og saklaust lamb inni í rúmi og kúgaðist af ógleði. Og svo fór, að ég veiktist af uppsölu og niðurgangi um nóttina. Mun ég hafa verið illa haldinn, því að mamma varð að vaka yfir mér fram und- ir morgun. Þá loks sofnaði ég og svaf langt fram á dag. Þegar ég vaknaði aftur, var ég vel frískur. Ormarnir voru farnir, og hef ég aldrei orðið þeirra var síðan. Seinna sagði eg mömmu frá því, að eg hefði drukkið sót- hræruna og veikst svona liastarlega af því, 2*

x

Nýjar kvöldvökur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Nýjar kvöldvökur
https://timarit.is/publication/511

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.