Nýjar kvöldvökur - 01.01.1950, Page 25

Nýjar kvöldvökur - 01.01.1950, Page 25
N. Kv. SUMARFERÐIR Á ÍSLANDI 1881 15 „Sei-sei, já,“ svarar Zoega. „Eg hef oft lesið hana, og eg skal gjarnan segja yður hana“.“ Coles tók þessu vel, og er þeir héldu ofan af Vatnsskarði, liægt og gætilega. hóf Zoega söguna, og öðru hvoru lögðu þeir Eyvindur og Siggi orð í belg, er þeim virtist Þórður hafa hlaupið yfir einstöku atriði sögunnar. I ferðasögu sinni endursegir svo Coles Grettis sögu á fimm stórum blaðsíðum, og er þar auðvitað stiklað á stóru. Er sögunni var lokið, voru þeir komnir ofan að Gili í Svartárdal, og áðu þeir þar og borðuðu skyr. Síðan var haldið niður með Blöndu, og yfir hana, og gerðist margt sögu- legt á þeirri leið. Þetta var fagur dagur og góður og endaði að lokum að Sólheimum í Svínavatnshreppi. Fengu þeir þar glænýjan silung í svanga maga ,og sáu um kvöldið dá- samlegan norðurljósaboga yfir þveran him- ininn. Sofnaðist þeim vel um nóttina og lágu allir í flatsæng á stofugólfinu. XI. Að Hnausum. Frá Sólheimum var haldið að Hnausum, og fengu þeir þar nýjan lax í fyrsta sinni á íslandi. Furðaði Coles mjög, hve laxveiðin virtist takmarkalaus og rekin af kappi með alls konar veiðitækjum, svo að til gereyð- ingar hlyti að horfa, væri ekki bráðlega tek- ið í taumana með nauðsynlegri löggjöf. Áætlun þeina var að gista á Hnausum, en halda síðan, eins fljótt og unnt væri, upp að Grímstungu í Vatnsdal og staðnæmast þar tvo daga til silungsveiða. Coles segir svo frá um þetta: „En er við sátum að kvöldverði, kom Zoega inn til okkar og hóf máls á þessa leið: „Þér getið ekki farið að Grímstungu, herrar mínir!“ „Hvers vegna ekki?“ spyrjum við. „Sökum þess, að læknirinn segir, að þang- að megi enginn fara.“ „En hvers vegna ekki? Hvað hefur lækn- irinn með okkur að gera?“ „Læknirinn segir, að fólkið þar hafi feng- ið veikina.“ „Æ! Kannske það hafi fengið bólusótt- ina?“ segi eg og leita hófanna. „Hvers kon- ar veiki er þetta, Zoega? Hvernig kemur hún í ljós í sjúklingunum?" „Stundum þrútnar höfuðið og verður af- ar stórt, og stundum bólgna fæturnir og fót- leggirnir," svarar hann. „Þar eð ekki varð komast að neinni nið- urstöðu á þennan hátt, datt okkur í hug, að ef til vill fengist betri úrlausn á þann hátt að spyrja, hvernig læknisaðgerðir væru og meðferð öll í þessu tilfelli, og ég spurði því: „Zoega, batnar fólki á nokkurn tíma aft- ur þessi veiki?“ „Sei-sei já, stundum," svarar Zoega. „Vitið þér, hvaða aðferðir læknar nota við sjúklingana?“ Zoega svarar hiklaust: „Þeir taka innan úr þeim.“ „En hamingjan góða, Zoega. Taka innan úr þeim? Enginn getur lifað, þegar búið er að taka innan úr honum!“ „Jæja,“ segir hann með mesta snarræði. „Þeir láta þeim blæða út.“ „En heyrið þér nú, það er alveg jafn mik- il fjarstæða eins og hitt að taka innan úr þeim, því að enginn maður getur lifað blóð- laus,“ sagði eg. En Zoega stóð fast á sínu máli og sagði, að svona væri venjulega gert og vísaði til bóndans um frekari sannanir í þessu máli. En hvernig sem í þessu lá, þá var auð- heyrt, að fylgdarmaður okkar vildi alls ekki að Grímstungu koma, og er húsbóndi bauð okkur að dvelja dag hjá sér og veiða lax á veiðistöðvum sínum, ákváðum við að þiggja það.“ „Eg verð samt að játa,“ segir Coles, „að við nánari íhugun fékk eg grun um, að saga þessi hafi átt upptök sín hjá bónda, sem hafi ekki kært sig um, að skildingar okkar skyldu

x

Nýjar kvöldvökur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Nýjar kvöldvökur
https://timarit.is/publication/511

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.