Nýjar kvöldvökur - 01.01.1950, Qupperneq 32

Nýjar kvöldvökur - 01.01.1950, Qupperneq 32
22 ÞRÍR HERMENN N. Kv. get þó ekki um annað hugsað. E£ til vill gæti það þó friðað mig ofurlítið, ef eg segði frá þessu og talaði um það.“ Við hinir ýttum undir hann með þetta. „Jæja,“ hóf hann máls. „Eg lét skrá mig í herinn á fyrsta degi og var hermaður, með- an stríðið varaði. Eg sá aldrei né lenti í neinu návígi nema aðeins einu sinni, — og þá brást eg algerlega.“ Nú varð löng þögn, áður en hann héldi áfram. Og hann varð auðsjáanlega að neyða sig til þess. „Á undanhaldinu upp eftir dalnum sunn- an Dofrafjalla*) var eg sjálfboðaliði í sér- stakri smádeild, sem falið var að verja veg- bugðu eina, unz herdeildir okkar hefðu tryggt sér varnarstöðu ofar í dalnum. Við áttum að verja vegbugðu þessa aðeins eina klukkustund, en á meðan á því stóð, mátti ekki sleppa neinum framhjá. Við vorum fjórir alls, þrír hermenn og einn liðsfor- ingi. Hann var brúnn og útitekinn í and- liti, og drættir allir skýrir og festulegir, og eg man, að hann hafði misst húfu sína. Við girtum veginn með trjábolum og föld- um olckur síðan í skóginum ofanvert við þjóðveginn. — Eg drap á það áðan, að ég hefði keppt í nokkrum skotæfingum, og var eg því settur fremstur í röðinni. Hinir lágu skáhallt fyrir ofan mig. Liðsforinginn stóð á bak við furutré, milli mín og næsta manns, og beitti sjónauka sínum látlaust. Við höfðum aðeins verið þarna fáeinar mínútur, er við heyrðum bifhjóla-dyn að neðan. Liðsforinginn kallaði til okkar, að hann sæi þrjá koma. Það væru Þjóðverjar, auðsjáanlega njósnardeild. Enginn þeirra mætti sleppa undan. Á því ylti algerlega hlutverk okkar hérna. Við yrðum að miða nákvæmlega. Svo skyldi hann gefa skipun, er við ættum að skjóta. Þegar Þjóðverjarnir urðu þvergirðingar- innar varir, hægðu þeir á sér. Einn þeirra *) Þ. e. Guðbrandsdalur. — Þýð. nam staðar rétt fyrir neðan mig. Hann sneri bifhjólinu skáhallt á veginum. Eg hafði hann í miði allan tímann. Hinir tveir riðu hægt upp að girðingunni og svip- uðust um, sýnilega órólegir og hálfsmeykir. Sá fremri þeirra hlýtur að hafa orðið okk- ar var, því að hann hrópaði aðvörunarorð til hinna. Minn náungi fleygði sér niður í vegarskurðinn, aðeins fáeina metra fyrir neðan mig. „Skjótið “ kallaði liðsforinginn. Tvö skot kváðu við. Báðir Þjóðverjarnir frammi á veginum hnigu dauðir niður. Eg snerti gikkinn á byssu minni, en gat ekki fengið mig til að þrýsta á hann. Þetta var í fyrsta sinn, sem eg átti að skjóta mannveru. Hann lá og sneri baki við mér og átti alls engrar undankomu auðið. „Hó...“ hrópaði eg til að gera honum að- vart um að snúa sér við og ná í byssu sína. Hann velti sér við og sat nú upp við veg- brúnina. Er hann sá mig, rétti hann báðar hendur upp yfir höfuð sér. Eg hampaði byssu minni upp og niður til að gefa í skyn, að hann ætti að standa upp og koma. Hann kinkaði kolli, en um leið og hann stóð upp, lét hann síga aðra höndina, eins og hann ætlaði að styðja sig. En í þess stað greip hann handsprengju í belti sínu, og er hann lyfti aftur liendinni, varpaði hann sprengj- unni í áttina til okkar. Hún sprakk skammt að baki mér, og eg heyrði stunu. Það var liðsforinginn okkar. Neðri hluti kviðar hans hafði tætzt sundur. Eg sá blóð og gor vella út, er Jtann hallaði sér upp að trénu. Neðan af veginum heyrði eg í bifhjólinu, sem var ræst rétt í þessu. Sprengingin hafði þeytt af mér glaraugunum, og er eg hafði sett þau upp aftur, var Þjóðverjinn úr skot- færi. Eg klifraði upp að furutrénu. Liðsforing- inn lá og studdi höfði upp að trjábolnum. Eg kraup á kné við lrliðina á honum og breiddi jakkann minn yfir sundurtættan kvið hans. Hann lyfti hönd sinni og snerti

x

Nýjar kvöldvökur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Nýjar kvöldvökur
https://timarit.is/publication/511

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.