Tjaldbúðin - 01.01.1902, Qupperneq 11
9
síra Jón, Sigtryggur og Einar Hjörleifsson (»Lög-
berg« 19. sept. 1888 og 27. marz 1889). Fyrsta
verk nefndarinnar var að koma á fót »Lögbergi«,
því »málgagni, sem' hefur að ætlunarverki að
reyna að gera landauðn« á íslandi (»ísafold« 29.
ág. 1888). »Lögberg« var innflutningsblað fyrir
Manitoba-stjórn (1888—1899) og Kanada-stjórn
(1896--1900) og ftíkk afarmikinn stjórnarstyrk
fyrir starfa sinn (»Dannebrog« 26. nóv. 1900).
Upp frá þeim tíma fóru leiðtogar kirkjufjelagsins
að gera útflutning frá íslandi að atvinnu sinni
(»Árný« bls. 40—45). 1160 íslendingar fluttust
vestur um haf 1888.
Á fyrsta ári sínu (1888) flutti »Lögberg«
38 greinar um innflutning, eitt níðkvæði og all-
mörg níðbrjef um Island. Á kirkjuþingi 1888
las síra Jón upp rit sitt: sísland að blása upp«.
»Lögberg« og innflutningsnefndin vildi láta safna
fjc ( Englandi og öðrum löndum Norðurálfunnar
til að flytja íslcndinga til Kanada (»Lögberg« 12.
og 19 sept. 1888) og vóru gerðar tilraunir í þá
átt. »Heimskringla« tók þá svari Islands gegn
»Lögbergi« og hjelt því fram, að ísland sje »engu
verra en Norður-Svíþjóð og Norður-Noregur, og
mun betra en landshlutar þeir, er liggja á sama
breiddarstigi í Ameríku t. d. Alaska, að suður-
skaganum undanteknum. Og ekki mun Suður-
ísland miklu síður, að öllu tiltöldu, en Norður-