Sjómannadagsblaðið

Volume

Sjómannadagsblaðið - 04.06.1939, Page 14

Sjómannadagsblaðið - 04.06.1939, Page 14
2 SJÖMANNADAGSBLAÐIÐ Sjómannadagurinn og mólefni hans. Eftir HENRY HÁLFDANSSON, formann Sjómannadagsráðsins. Sjómannadagurinn er þegar orðinn einn af hátíðisdögum ársins. Dagur, sem jafnan hlýtur að verða tilhlökkunarefni sjómanna, sem fara svo margs á mis, og heyja atvinnubaráttu sína við svo hættuleg og erfið lífskjör, og einnig allra þeirra, sem í viðurkenningu og með alhug vilja taka höndum saman með sjómannastéttinni, til að gera henni daginn sem ánægjulegastan og vinna að framgangi þeirra menningarmála sjó- manna sem á dagskrá eru. Mennirnir, sem löngum hafa lifað eins og út- lagar með þjóð sinni, og sem oft og tíðum hafa verið eins og gestir á sínum eigin heimilum, hafa nú vaknað til dáðríks samstarfs um ýms menningarleg markmið, og þeir vilja einnig iðka íþróttir og skemmta sér sameiginlega á þess- um degi. Þeir ætlast til að fá það rúm í sólskininu, sem þeir eiga hlutfallslega tilkall til, og kæra sig ekkert um að láta vanmeta gildi sitt í þjóð- félaginu, þess vegna munu þeir og nota daginn til þess að kynna fyrir þjóðinni hversu þörf og þýðingarmikil störf þeirra eru. þið eigið kost á að læra allt það, sem viðkem- ur ykkar starfi, bæði bóklegt og verklegt, það, sem hægt er að kenna á landi. Og þið skuluð ekki telja það eftir ykkur meðan þið eruð ungir, þótt þið eyðið 2—3 vetrum til náms, því að þið vitið ekkert hvað bíður ykkar á lífsleiðinni, og það er áreiðanlega betra að hafa lært það fyllsta, sem krafist er, heldur en hlaupa til og vera á stuttu námskeiði, og telja sjálfum sér trú um, að þetta stutta námskeið hafi veitt þá menntun, sem dugi þeim alla tíð, af því að í augnablikinu var ekki krafist meira. Islenzkir sjómenn, setjið ykkur það markmið, hvaða starf sem þið takið fyrir á sjónum, að vera sem bezt menntaðir, því að það verður áreiðanlega ykkur og þjóðinni til farsældar. Almenningur sýndi það strax í fyrra, á fyrsta Sjómannadeginum, að hann hefir samhug til þeirra manna, sem í brjóstvörn standa fyrir hann. Þegar fulltrúar sjómannanna komu sam- an fyrir rúmu ári síðan til að ræða og undir- búa samtökin um sérstakan Sjómannadag, gerðu þeir sér auðvitað beztu vonir um árang- ur af þeirri viðleitni, þó að sennilega fæsta hafi órað fyrir því, að dagurinn myndi vekja eins mikla og almenna hrifni og raun varð á, Skrúðganga sjómanna gegn um bæinn, var líkust sigurför, þar sem áhorfendurnir keppt- ust við að heiðra þátttakendurna og sýna þeim hollustu sína. Það sýndi sig bezt þá, hve sjó- mennirnir eru fjölmennur hópur í höfuðborg- inni, og hversu mikil ítök þeir eiga í fólkinu. Vonandi verður það þannig ár eftir ár, á hverj- um Sjómannadegi, að sjómennirnir ganga fylktu Uði í gegnum götur borgarinnar til hátíðahalda sinna, og að veifað verði til þeirra úr hverjum glugga, sem gengið er fram hjá. Að svona vel tókst með þennan sjómanna- dag, er fyrst og fremst að þakka hinu góða málefni og hversu sjómennirnir eru vel þokk- aðir af öllum almenningi, og þá ekki sízt vegna þess, að sjómennirnir komu þarna fram óskipt- ir, yfirmenn jafnt og undirgefnir, og án þess að nokkur flokkaskipting ætti sér stað. Við sjómennirnir höfum fyllstu ástæðu til að vera ánægðir með þann árangur, sem fékkst með fyrsta Sjómannadeginum, þar sem með honum var náð þeim höfuð-tilgangi, að sam- eina sjómennina um einn ákveðinn hátíðisdag á hverju ári, til að vinna að menningarlegum velferðarmálum sínum, og til að vekja skilning og virðingu landsmanna fyrir sjómannastéttinni og áhugamálum hennar. Allir dagskrárliðir Sjómannadagsins eiga að vera til vegsauka fyrir sjómannastéttina, eða á annan hátt að verða henni til uppörfunar og
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104

x

Sjómannadagsblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Sjómannadagsblaðið
https://timarit.is/publication/557

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.