Sjómannadagsblaðið

Volume

Sjómannadagsblaðið - 12.06.1949, Page 37

Sjómannadagsblaðið - 12.06.1949, Page 37
Fyrir nokkrum árum skrifaði ég hér í blaðið grein frá dvöl minni í Alaska á sínum tima. Ýmsir urðu hl að þakka mér fyrir greinina og fóru þess á leit að eS skrifaði meira um þetta merklega og lítt numda ^nd. Og satt að segja hafði ég ætlað mér að gera ÞaÝ en bæði er, að ég varð fyrir því óhappi að tapa dngbók minni frá þessum tíma í skipreika, sem ég lenti í) Og svo hefur mér gengið ver en ég hélt að upp viðunandi skýra heildarmynd af því sem ég ^ynntist og mér bar fyrir augu fyrir svo löngu síðan. En nú fyrir skömmu gafst mér óvænt tækifæri til glöggva þetta allt upp aftur. Það var bréf, Sern pósturinn færði mér um daginn. Hann stakk t>ví inn í falsinn með hurðinni, eins og hann Serir alltaf, ef hurðin er lokuð, svo kom það í ljós Þegar næst var opnað. Utan á bréfinu stóð nafn mitt °S svo: Reykjavík, ísland. Það vakti strax eftirvænt- lngu mína, að á póststimplinum stóð skírum stöfurn ^riska, og því furðulegra var það, vegna þess, að eg hafði ekki átt nein bréfaskipti við það land síðan eS leit það semast fvrir rúmum 25 árum síðan, og ^•"efritarann hafði ég hvorki heyrt né séð öll þessi ar- Eg hafði ekki hugmynd um, hvar hann gæti verið n'ðurkominn í veröldinni, fremur en ég gæti búist 'lð að hann vissi hvar mig væri að hitta. Efann byrjaði með því að segja mér, að hann hefði itt íslending nýkominn að heiman, er hefði strax annast við mig, og 'hefði sér þá dottið í hug að Senda mér línu upp á gamlan og góðan kunnings- sltaP- „Ég vona að þú sért ekki búinn að gleyma n'ler'‘> sagði hann. „Sigvad Hansen (the carpenter)" ^núður var ég nefndur. Já, hvort ég kannaðist ekki !hann, þótt meira en aldarfjórðungur væri nú lið- Inn síðan við vorum saman með „Ester“ leiðangrinum Alaska. Jú, það voru dýrðar dagar, nú rifjast það alh saman upp fyrir mér. »Eg vona að þú hafir ekki gleymt gömlu félögun- Uln ý skrifaði Sigvad. „Margir þeirra eru nú horfnir. ^umir hafa druknað. Arne Olsen (capt. Duddlebass) clrukknaði nokkru eftir að þú fórst. Danski mat- SVe'nninn hann Axel Jensen sömuleiðis. Svíinn Einar J°hansson varð undir járnbrautarlest. Hina sé ég endr- Una og eins, en Hardy Hofstad og Jimme Heburn 'tti eg oft. Ég sagði þeim, að ég hefði frétt af þér og að ég ætlaði að skrifa þér, og þeir báðu mig að skila ,eztu kveðju til þín. Lofoten hefi ég ekki séð í mörg ar> og ég gæti vel trúað að hann væri aftur horfinn eim til gamla Noregs, landa þínum Kristjáni Heiga- syni hefurðu víst fréttir af. Og minningarnar ryðja Ser fram þegar ég heyri þessi gömlu nöfn. Ég minnist k; 7? V • t \ llffi m 1 t 1 115 m I ii Hardy Hofstad. fyrstu heimsóknar minnar um borð í „Ester“ þar sem verið var að útbúa hana til ferðarinnar. Það var eftir vinnutíma og enginn var um borð nema vakt- maðurinn. Hann sat á kassa útifyrir eldhúsdyrunum og var að þvo af sér sokka. Þegar hann leit við, rak okkur báða í rogastanz. Þetta var Kristján Helgason svo að segja jafnaldri minn frá Isafirði, þar sem við vorum báðir fæddir og uppaldir. Stutt var síðan að við höfðum báðir farið að heiman, hann í vestur en ég í austur og þarna hittumst við aftur, báðir á norðurleið. Hvort ég man ekki eftir honum, Sigvad Hansen og öllum hinum félögunum. Við Hansen vorum þá að verða tvítugir. Hann hafði flutt til North Dakota fyrir nokkrum árum frá Noregi. Hann hafði aldrei verið til sjós nema á leiðinni yfir hafið, og við hinir skoðuðum hann sem hálfgerðan sveitadreng, og svo var hann svo teprulegur með sig. Ég var nýstrokinn af dönsku Ástralíu-fari, daginn áður en það átti að SJÓMANNADAGSBLAÐIÐ 1 7

x

Sjómannadagsblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Sjómannadagsblaðið
https://timarit.is/publication/557

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.