Sjómannadagsblaðið - 02.06.1957, Page 53
Róðrarsveit m.b. Þórðar
Olafssonar frá Ólafsví\, sem
vann það sér til frcegðar,
sem gest\omandi í bcenum,
að vinna fune-Mun\tell
bi\arinn og lárviðarsveig
Sjómannadagsins 1956.
báturinn hvarf. Fór þetta fram í náttmyrkri og
fárviðri úti á rúmsjó og var hið mesta þrekvirki.
Þetta er ekki eina björgunarafrek Guðmundar,
því að hann hafði áður bjargað 2 skipsfélögum
sínum er féllu útbyrðis af skipinu er það það
var á fullri ferð í Faxaflóa.
Heiðursmerki Sjómannadagsins voru veitt 2
mönnum, þeim Jóni Magnússyni skipstjóra frá
Mið-Seli og Oddi Valentínussyni hafnsögumanni
frá Stykkishólmi.
Blaða- og merkjasala Sjómannadagsins gekk
vel kvöldskemmtanir voru haldnar í flestum
skemmtistöðum borgarinnar og var þar víðast
húsfyllir.
Þá önnuðust sjómannakonur um kaffiveitingar
í Sjálfstæðishúsinu. Var þar geysi-aðsókn að
vanda, en allur ágóðinn rann til Dvalarheimilis-
ins.
Utvarpað var frá útihátíðahöldunum og um
kvöldið var smekkleg Sjómannadagskvöldvaka í
útvarpinu.
Sjómannadagurinn þakkar hérmeð öllum þeim
mörgu sem greiddu götu hans á einn eða annan
hátt.
Sjómannadagshátíðahöldin í Hafnarfirði fóru
fram á Óseyrartúni. Ræður voru fluttar og keppt
í kappróðri og öðrum íþróttum. Þá fóru og Sjó-
mannadagshátíðahöld fram í flestum kaupstöðum
og sjávarþorpum landsins með svipuðu fyrir-
komulagi og ágætri þátttöku allsstaðar.
Pétur Eirí\sson fis\imatsmaður, sem fengið hefur 19 sinnum
verðlaun Sjómannadagsins i íþrótta\eppni.
SJÓMANNADAGSBLAÐIÐ 37