Sjómannadagsblaðið

Volume

Sjómannadagsblaðið - 01.06.1981, Page 68

Sjómannadagsblaðið - 01.06.1981, Page 68
 WASA herskip svíakonungs sem lá 333 ár á haísbotni Sunnudaginn 10. ágúst 1628 lagði frá bryggju í Stokkhólmi í jómfrúferð sína herskip Gústafs II Adólfs Svíakonungs, Wasa. Förinni var í fyrstu heitið til flota- stöðvarinnar Alvsnabben, þar sem safna átti saman flota konungs til innrásar i Pólland. Þá stóð 30 ára stríðið sem hæst og ætl- aði Svíakonungur sér mikinn hlut í hernaði á meginlandi Evrópu. En milli Svíþjóðar og meginlandsins er Eystrasalt og því þurfti konungur á miklum flota að halda. Árið 1625 ákvað Gústaf II. Adólf að láta smíða 4 skip við skipasmíðastöð sína í Stokkhólmi. Tvö stærri og tvö minni. Wasa var fyrri stóra skipið. Kjölur þess var lagður 1626. Það átti að verða 62 metrar að lengd frá stafnlíkneski til skuts og mesta breidd var 11,7 metrar. Það eru svipuð mál og eru á skuttogurum af stærð við Engey. Til smíðinnar þurfti mikinn við sem höggvinn var í nágrenni Stokkhólms. Eik var aðallega notuð. Þurfti að vanda val þeirra trjáa er höggva skyldi vel, því bæði þurfti marga digra og langa bjálka undir þilför og sérstaklega vaxin tré til að notast sem vinklar eða hné upp með síðu undir 62 SJÓMANNADAGSBLAÐIÐ þilför og voru þilfarsbitar festir við grein- ina. Er það stórfenglegt verkfræðilegt af- rek, jafnvel á nútíma mælikvarða, að ljúka smíðinni á tveim árum. Á þeim tímum voru ekki til neinar vinnuteikningar gerðar af hámenntuðum skipaverkfræðingum, heldur hafði yfir- smiðurinn á sinni könnu að segja til um smíðina. Hann lét gera eins konar mát sem notast var við til að skipið fengi rétta lögun. Eins og þá var siður var skipið skreytt frá stafni til skuts með útskornum mynd- um. Fremst á stafnlíkneskinu var listilega útskorið Íjón í stökkstöðu, væntanlega ætlað til að skjóta andstæðingum konungs skelk í bringu. Aftan ljónsins á stafnlíkn- eskinu voru rómverksir keisarar skornir út í röð sitthvoru megin. Fyrir fallbyssuport- unum voru ljónshöfuð úr tré. Hinn hái skutur skipsins var skreyttur mörgum myndum og bar mest á gullslegnu skjald- armerki rkisins. Innanborðs voru íbúðir aðmíráls og skipherra skreyttar útskurði. Yfirleitt var hver mynd með sögulegan bakgrunn. Var efni margra þeirra sótt í gríska goðafræði og sögu konunga og keisara og hernaðarafreka þeirra. Talið er að 3—4 tréskurðameistarar hafi séð um gerð myndanna og hafi hver um sig haft fjölda lærlinga og sveina í þjónustu sinni. Alls munu yfir 700 skurðmyndir hafa skreytt Wasa. Skipið var 5 þilfara stafna milli. Undir neðsta þilfari var föst kjölfesta sem var grjót, vóg hún 120 tonn. Þar fyrir ofan voru tvö þilför sem nýtt voru til geymslu á akkerisköðlum, seglum, vistum og skot- færum. Þar fyrir ofan voru tvö fallbyssu- þilför undir aðíalþilfari. II Skipinu var stýrt með stöng sem lék um ás og var hreyfð til þess borðs er stýra átti í. Stöngin færði stýrið og var mest hægt að snúa því sjö gráður í hvort borð. Á skipum með svo lítið stýrishorn verður að beita seglum með stýri til að halda skipi á stefnu. Sá er stýrði stóð á palli innanþilja á efra fallbyssuþilfari og hafði því ekkert útsýni og varð að fara eftir fyrirmælum skipherra eða stýrimanna að ofan. Aftast á efra fallbyssuþilfari var káeta aðmíráls. Með veggjum káetunnar voru bekkir sem hægt var að draga út og voru þeir þá hvílur fyrir tvo menn í hverjum bekk, sem munu hafa sofið andfætis. í káetunni mataðist aðmírállinn. Framan við aðmírálskáetunna var stýrisherbergið. Var það um tveir metrar
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104

x

Sjómannadagsblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Sjómannadagsblaðið
https://timarit.is/publication/557

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.