Sjómannadagsblaðið - 01.06.1996, Blaðsíða 6
6
SJÓMANNADAGSBLAÐIÐ
Minnismerki helgað sjómönnum og
sjósókn reist á 60 ára afmæli
Sj ómannadagsins
Rætt við Guðmund Hallvarðsson alþingismann og formann Sjómannadagsráðs
að er löngu orðin venja að
Sjómannadagsblaðið komi
að máli við formann Sjó-
mannadagsráðs og inni hann eftir því
sem áunnist hefur í starfi samtak-
anna frá fyrra ári og þá ekki síður
hver þau nýju markmið eru sem sett
hafa verið. Hér á eftir fylgir því viðtal
við Guðmund Hallvarðsson alþingis-
mann og formann Sjómannadags-
ráðs og kemur á daginn að margt
mikilsvert hefur náð fram að ganga
og að mörg háleit markmið eru fyrir
stafni. En eins og skyldan býður inn-
um við Guðmund fyrst eftir því sem
hæst bar á sl. ári.
„Margt hefur gerst frá því er ég
síðast átti viðtal við Sjómannadags-
blaðið og man ég að í síðasta spjalli
okkar ræddum við um íbúðablokk þá
á lóð Hrafnistu sem stendur hér niðri
við Kleppsveg, en þar er um að ræða
38 íbúðir fyrir aldraða. Þessar íbúðir
voru teknar í notkun í byrjun desem-
bermánaðar sl. og njóta íbúðirnar
allrar þjónustu héðan frá heimilinu
eins og alltaf var ráð fyrir gert. Þá
mun nú á næstu vikum verða tekið í
notkun sérstakt neyðarbjöllukerfi
fyrir íbúana, sem mun auka öryggi
þeirra að miklum mun. Verður þá
séð fyrir öllum aðbúnaði fólks og ör-
yggi eins vel og okkur er unnt að láta
í té.“
Endurhæfíngarmiðstöðin
tilbúin um áramót
„Þá hlýt ég að víkja að nýju endur-
hæfingarmiðstöðinni við Hrafnistu í
Reykjavík, sem við höfum verið að
Guðmundur Hallvarðsson formaður Sjó-
mannadagsráðs: „Vonum að allt leiði
þetta til þess að gera megi gott verk enn
betra.“ (Ljósm.: Björn Pálsson)
byggja í samstarfi við Reykjavíkur-
borg og búin er glæsilegri sundlaug.
Þessu verki miðar vel, en þótt við
gerðum okkur vonir um að þetta
mannvirki hefði mátt taka í notkun á
sjálfan Sjómannadaginn nú í sumar,
þá hefur ýmislegt orðið þess valdandi
að við verðum að fresta vígslu stöðv-
arinnar fram til næstu áramóta eða
þar um bil. En verkinu miðar eigi að
síður vel og ég heyri á vistfólki okkar
að það efast ekki um að þangað eigi
það eftir að sækja sér uppsprettu
andlegrar og líkamlegrar velíðunar.
En meðan við bíðum eftir sundlaug-
inni og aðstöðunni hér fara aldraðir
frá Hrafnistu héðan úr Reykjavík til
Hafnarfjarðar, enda nýtingin á að-
stöðunni þar frábær. Komur þeirra
einna sem á heimilinu í Hafnarfirði
búa voru um 7000 á síðasta ári og
þegar litið er á viðbótina héðan úr
Reykjavík má sjá hve eftirsótt þessi
heilsurækt er. Sjúkraþjálfarar okkar
bæði í Hafnarfirði og í Reykjavík
hafa líka bent á hvílík afbragðsað-
staða skapast við það að geta haft
þetta allt fernt saman — sjúkraþjálf-
un, leikfimisal, heita potta og sund-
laug. Þetta mun að sjálfsögðu einnig
verða allt fyrir hendi hér í Reykjavík,
þegar aðstaðan verður fullbúin.
Við tökum einnig eftir því núna að
eftir að þetta svonefnda vistunarmat
var tekið upp, en þá er sérstakur
hópur sérfróðra manna látinn meta
þörfina fyrir vistun fólks, kemur fólk
hingað á heimilin við lakari heilsu en
var — eldra, sjúkra og þarfnast meiri
umönnunar. Því fremur vonumst við
til að hin nýja aðstaða geri skjólstæð-
ingum okkar lífið léttbærara. Enn
mun hin nýja aðstaða leiða til þess að
það verður talsvert rýmra um okkur
hér á jarðhæð Hrafnistu, en alltaf
virðist það vera svo að þörfin fyrir
hvers kyns þjónusturými fer vax-
andi.“
Rís nýja hjúkrunarálman á
lóð Hrafnistu í Reykjavík?
„Eitt af því sem segja má að sé í
brennideplinum núna er það að við
höfum sent bréf til Heilbrigðis- og
tryggingaráðuneytisins og ítrekað
ósk okkar um að fá að byggja 90
rúma hjúkrunarálmu við Hrafnistu í
Hafnarfirði, sem beðið hefur verið
eftir í mörg ár. Með tilliti til þess
svars sem við fengum frá ráðu-