Sjómannadagsblaðið

Árgangur

Sjómannadagsblaðið - 01.06.1996, Blaðsíða 18

Sjómannadagsblaðið - 01.06.1996, Blaðsíða 18
18 SJÓMANNADAGSBLAÐIÐ Sigurður og Edda með sonarson sinn Birgi Viðar Magnússon Prestabugt. Síðan hélt varðskipið frá ísafirði og hóf þáttöku í leitinni að „Heiðrúnu II.“ ÍS-12. Leitað var í Jökulfjörðum, en án árangurs. Kl. 17.45 kallaði björgunarsveit SVFÍ í Bolungarvík og óskaði eftir að varðskipsmenn tækju sveitina í fjörunni framan við skipbrotsmanna- skýlið í Stigahlíð og flytti þ im borð í vélbátinn „Einar“ ÍS-8e. \ . þessu verki lokið um kl. 19.00. Par með má segja að þessum björgunarleiðangri væri lokið. Margt hafði skeð undanfarin dægur og oft var atburðarásin það hröð að ekki vannst tími til að skrásetja nema helstu atriði hverju sinni og mun þessi frásögn bera keim af því.“ Tilraun til björgunar Frigg-VE 1973 „Næsti atburður sem ég vil segja þér frá átti sér stað fimm árum síðar. Þegar gosið hófst í Vestmannaeyjum þann 23. janúar 1973 lá ég á spítala, en komst á ról skömmu seinna og fór þá á vakt um skeið vestur í stjórnstöð Landhelgisgæslunnar, en þar var þá margt um manninn vegna þessara vá- legu atburða. En hinn 17. febrúar fór ég um borð í Óðinn, sem ég hafði verið með áður en ég lagðist á sjúkra- húsið. Þorskastríðið vegna 50 míln- anna stóð þá sem hæst og vorum við á sveimi innan um bresku togarana, ekki síst úti af Vestfjörðum, fram til þess 28. mars, en við höfðum þá legið í sólarhring eða svo inni á Hornvík. En þennan dag léttum við akker- um og héldum til s-vesturlandsins. Vorum við komnir í Garðsjóinn skömmu fyrir miðnætti næsta kvöld. Veður var af vestri og fór versnandi. En þá fréttum við af Vestmannaeyja- bátum sem áttu í vandræðum undan Grindavík og klukkan 6 að morgni þess 29. mars lögðum við af stað suð- ur fyrir Garðskaga í 10-11 vindstig- um. Er þó ekki að orðlengja það að bátarnir komust allir hjálparlaust að landi — nema Frigg VE. 316, sem var 50 lestir. Leki hafði komist að bátn- um og vélin stöðvast og var báturinn í miklum nauðum staddur. Við héld- um því áfram að berjast fyrir Garð- skagann og suður með að Grindavík og tók sú sigling fimm og hálfa klukkustund! Til samanburðar má nefna að þessa vegalengd hefðum við að öllu jöfnu komist á tveimur og hálfum klukkutíma. Er ekki of sterkt til orða tekið að þetta var aftakaveð- ur. En þegar við loks komum að Frigg hafði áhöfninni verið bjargað um borð í annan Vestmannaeyjabát, Öðling VE 202, sem Friðrik Ás- mundsson, síðar skólastjóri, var með, og rak bátinn því mannlausan. Hér var úr vöndu að ráða, en þá bauðst yfirstýrimaðurminn, Kristinn heitinn Árnason, til þess að freista þess að fara á gúmbáti með enda yfir í Frigg, svo unnt yrði að draga hann til hafnar. Þetta var karlmannlega boðið, en ég treysti mér ekki til að senda bát frá skipinu þegar svona stóð á: Ef til vill hefði þetta verið í lagi ef hægt hefði verið að hreyfa varðskipið til eins og gúmbátnum hentaði. En ég sá í hendi mér að eftir að búið hefði verið að festa enda í Frigg hefði varðskipið þar með verið orðið bundið og óttaðist ég hreinlega að okkur mundi reynast ógjörningur að ná gúmbátnum aftur um borð. Þar með neitaði ég þessari djarflegu upp- ástungu, þótt raunalegt væri að verða að horfa upp á það er bátinn rak í átt að landi í veðurofsanum. Við fylgdumst með honum allan daginn í von um að veðrið lægði eitt- hvað og aðstæður breyttust. En svo fór ekki og um 5-leytið um daginn misstum við af Frigg, þá komnir grunnt inn á víkina vestanvert við Selvogsvitann. Þá þorðum við ekki lengra, enda aðeins hálf til ein míla upp að ströndinni. Báturinn hvarf í brimrótinu við ströndina og mun eitthvað úr honum hafa fundist rekið á fjörur seinna. En ég man að mönn- um fannst það vera alveg furðanlega lítið sem fannst. Mér er það annars glöggt í minni að þegar við tókum að mjaka okkur fjær landinu á þriggja til fjögurra mílna ferð, þá hryggjaði svo undir varðskipinu að ég veit ekki hvernig farið hefði ef við hefðum verið á svo sem átta til tíu mílna ferð. Hef ég stundum velt því fyrir mér hví ég var að fylgjast með bátnum svo lengi, því sýnt var að honum varð ekki bjargað en varðskipið var lagt í verulega hættu. Tókum við nú að berjast vestur fyrir Reykjanesið og gekk það af- burða illa. Kominn var foráttusjór og tók ég þann kost að fara út undir Eldey og í gegnum Reykjanesröstina í vari af Eldeyjarskerjunum. Var það loks um kl. 12 um nóttina að við vor- um komnir í Garðsjóinn að nýju og var veðrið þá enn 8-11 vindstig. I Garðsjónum létum við reka í leið- indaveðri þann 30., en héldum þá
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100
Blaðsíða 101
Blaðsíða 102
Blaðsíða 103
Blaðsíða 104
Blaðsíða 105
Blaðsíða 106
Blaðsíða 107
Blaðsíða 108

x

Sjómannadagsblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Sjómannadagsblaðið
https://timarit.is/publication/557

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.