Sjómannadagsblaðið - 01.06.1996, Blaðsíða 16
16
SJÓMANNADAGSBLAÐIÐ
Sigurður á kunnuglegum slóðum niðri við bryggjur varðskipanna
Djúpinu með bilaða ratsjá og dýptar-
mæli, en dýptarmælirinn komst fljót-
lega í lag og ætlaði báturinn þá að
setja út ljósdufl til að lóna við.
Kl. 16.45 tilkynnti ísafjörður radíó
að slys hefði orðið á Flateyri og væri
óskað aðstoðar okkar við að flytja
sjúklinginn til Þingeyrar, en skömmu
síðar var bessi hjálparbeiðni aftur-
kölluð.
Um kl. 21.55 óskaði m/b „Heiðrún
11“ ÍS-12 eftir að við kæmum til henn-
ar til að staðsetja bátinn þar sem
hann andæfði við ljósdufl undir
Bjarnarnúp, að hann taldi. Þessi
skilaboð komu í gegnum m/b „Guð-
mund Péturs“ IS-1, sem var við
bryggju á ísafirði og hafði verið í
sambandi við bátinn, en mjög illa
gekk að hafa samband við „Heið-
rúnu II. En um kl. 23.15 fundum við
bátinn 1.2 sml. sunnan við Bjarnar-
núp, og var bátnum tilkynnt um stað-
inn, en skömmu áður en komið var
til bátsins herti veðrið mjög mikið,
svo á þessum slóðum var þá ofsaveð-
ur af NA. Um þetta leyti fór Kelvin
Huges ratsjáin að sýna illa vegna ís-
ingar, en Sperry ratsjá var þá orðin
óvirk al' sömu orsökum. Var þá
ákveðið að lóna undir Grænuhlíð til
að freista þess að hreinsa loftnet
Kelvin Huges ratsjárinnar.“
„Notts County“ GY-643
strandar
„Um kl. 22.57 tilkynnti ísafjörður
radíó að breski togarinn „Ross
Cleveland“ H-267 væri 3 sml. frá
Arnarnesi og hefði ratsjá hans bilað
og hinir togararnir næðu honum ekki
inn á sínar ratsjár.
Kl. 23.30 tilkynnti ísafjörður radíó
að breski togarinn „Notts County“
GY-643 væri strandaður á 66 gráðum
19°N og 23 gráður 06°V, en síðar leið-
rétti breski togarinn „Kingston Al-
amandine“ H-104 staðinn í 66 gráður
10°5 N og 22 gráður 55°0 V og reynd-
ist það rétt staðarákvörðun.Þegar til-
kynningin um strandið kom, tókstll.
stýrimanni varðskipsins að brjótast
upp að loftneti K.H. ratsjárinnar og
hreinsa það, en síðan var haldið á
strandstað.
A leiðinni að hinu strandaða skipi
töldum við okkur sjá í ratsjánni skip,
sem gæti hafa verið „Heiðrún II.“
IS-12, og var hún þá á svipuðum stað
og áður, en þá var samband við bát-
inn rofið og heyrðist ekkert í honum
eftir það. Var blindsend tilkynning
til bátsins um að halda vestur fyrir
Bjarnarnúp, því þar virtist vera
minni vindur. Síðast þegar við töld-
um okkur sjá bátinn á ratsjánni, var
hann á vesturleið um 2.7 sjómílur frá
Bjarnarnúp. Bátnum var einnig bent
á eftir tilmælum frá ísafjörður radíó
að nota neyðarsendi sem í bátnum
var og sendi út á bylgjulegd 2182
ko/s, en ekki varð vart við að hann
gerði það.“
Á strandstað
„Þegar komið var á strandstað b/v
„Notts County“ GY-643 um kl.
24.00 geisaði ofsaveður á þessum
slóðum og var þá orðið ljóst að veðr-
ið var lang harðast sunnan við Bjarn-
arnúp. Það var þegar ljóst að ekkert
varð að gert á strandstaðnum að
óbreyttu veðri.
Kl. 00.30 hinn 5. febrúar kom
fyrirspurn frá Slysavarnafélagi Is-
lands á ísafirði um hvort þeir gætu
ekki gert eitthvað til hjálpar. Var
þeim tilkynnt að ekki væri viðlit að
hugsa til björgunar að svo komnu
máli.
Kl. 01.12 var ísafirði radíó send
eftirfarandi tilkynning: SKIPIÐ ER
STRANDAÐ 7.5 SML. FYRIR
UTAN ÆÐEY. EKKI MÖGU-
LEGT AÐ GERA NEITT VEGNA