Sjómannadagsblaðið

Árgangur

Sjómannadagsblaðið - 01.06.1996, Blaðsíða 14

Sjómannadagsblaðið - 01.06.1996, Blaðsíða 14
14 SJÓMANNADAGSBLAÐIÐ Tíðarandinn var að hlífa sér ekki „Árið 1956 urðu þau þáttaskil hjá Gæslunni að Hörður Þórhallsson stýrimaður um borð í Katalínu-flug- vél stofunarinnar hjá Guðmundi Kjærnested lét af störfum. Er ekki að orðlengja það að þegar Hörður hætti var ég sendur í flugið í hans stað. Fór þá tímabil í hönd þegar ég var ýmist stýrimaður um borð í flugvélinni eða á skipunum. En 1958 og 1959 tók ég öðru hvoru að leysa af sem skipherra, oftast á minni skipunum, eins og gamla Óðni, Maríu Júlíu og Sæbjörgu. Frá þessum tíma á litlu skipunum er margs að minnast. Þannig gerðist það þegar landhelgin var færð út í 12 mílur í september 1958 að Pétur Sig- urðsson forstjóri kallaði á mig vestur í Gæslu og bað mig um að gerast skipherra á DC-3 flugvél sem stofn- unin hafði þá á leigu, þar sem Kata- línu- flugvélin var í viðgerð í Dan- mörku. Óneitanlega freistaði þetta verkefni mín, ekki síst þar sem úr flugvélinni gafst fróðleg yfirsýn yfir það sem á miðunum var að gerast. En þá hendir það að Gunnar Ólafsson, skipherra á minnsta varð- skipinu, Sæbjörgu, veiktist og var mér gert að taka við skipinu í hans stað. Kom í hlut Þrastar Sigtryggs- sonar að fara um borð í flugvélina. Við vorum settir til gæslu hér úti af suð-vestur horni landsins við Eldeyj- arsker og fylgdumst með þýskum togurum sem þar voru að veiðum — og er mér enn í minni hve mér leidd- ist þetta! En að nokkrum dögum liðnum vorum við sendir í slaginn fyrir vestan og léttist þá óneitanlega á manni brúnin. Þó er það ekki við- ureignin við Bretana vestra heldur nokkuð óvenjulegt verkefni sem okkur var fengið sem ég ætla að segja þér frá hér. í Bolungarvík tókum við í tog pramma sem fylgdi dýpkunarskipinu Gretti og fengum fyrirmæli um að fara með hann til Ákraness. Þetta var satt að segja talsvert spennandi, því okkur var það metnaður að skila verkinu af okkur með sóma, þótt dráttarskipið væri lítið. En ekki gekk Ólafur Jóhannesson, þá dómsmálaráðherra, í heimsókn hjá skipherranum á Óðni. (Ljósm. Guðjón R. Ágústsson). borð og þetta sumar fyrir 43 árum er sveipað ljóma í endurminningunni. En haustið 1954 settist ég í varðskipa- deild Stýrimannaskólans og vorum við fimm í deildinni. Hinir voru Þröstur Sigtryggsson, Gunnar Ólafs- son, Pétur heitinn Jónsson og Lárus heitinn Þorsteinsson. Við útskrifuðumst í febrúar 1955 og þar með var ég sendur sem stýri- maður til Eiríks Kristóferssonar skipherra, en hann gegndi þá skip- herrastöðunni á stærsta og nýjasta varðskipi landsins — Þór — en skipið var þá aðeins þriggja eða fjögurra ára. Ég var þó ekki lengi á Þór að þessu sinni, var senn látinn fara sem stýrimaður út með einhverju öðru af varðskipunum en flutningur á mönn- um milli skipa var tíður.“ Peir eru margir sem eiga varðskipsmönnum líf eða aðstoð að þakka. Hér vottar einn Sigurði þakkir sínar með þéttu handtaki eftir björgun af brennandi báti.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100
Blaðsíða 101
Blaðsíða 102
Blaðsíða 103
Blaðsíða 104
Blaðsíða 105
Blaðsíða 106
Blaðsíða 107
Blaðsíða 108

x

Sjómannadagsblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Sjómannadagsblaðið
https://timarit.is/publication/557

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.