Eimreiðin - 01.01.1923, Side 45
eimreiðin
Þ]ÓÐHÁTÍÐ
41
annars af því, að meiri hluti fólksins, kvenþjóðin, hætti að
leggja fram krafta sína þann dag og gerði kröfu til að allir
virtu 19. júní sein sérstaklega hátíðlegan merkisdag. En þess
skal getið konunum til maklegs lofs, að þær hafa þenna dag
beitt orku sinni til styrktar göfugu máli, stofnun Landsspítala.
Loks gerðist 1918 sá viðburður með þjóð vorri, að hún
fékk viðurkent fullveldi sitt. Ríkisfáninn var dreginn að hún
L desember það ár, í fyrsta sinn. Ollum er það ljóst, að þessi
dagur yfirskyggir hina aðra áðurnefnda daga að mikilvægi, en
yegna árstíðarinnar getur fullveldisdagurinn ekki verið almenn-
ur útivistar hátíðisdagur, þótt forsjónin hagaði því svo dásam-
lega hinn 1. fullveldisdag, að veðrið var hið dýrðlegasta, að
rninsta kosti í höfuðstaðnum og um Suðurland.')
Nú er komið svo, að það er enginn dagur ársins, sem þjóðin.
kannast við sem hinn eina og rétta þjóðminningardag — þjóð-
hátíðardag. Af sumum er 17. júní kallaður enn þjóðhátíðar-
dagur, en fyrir öllum almenningi er það ekki svo og opinber
flaggdagur er hann ekki, sbr. bréf stjórnarráðsins 17. janúar
1920.*) Tilþrifin í höfuðstaðnum þenna dag síðustu ár bera
þess ljósastan vott, að hátíðabrigðin eru ekki mikil. Enn halda
að vísu nokkrir góðir menn uppi þeim sið, er hófst 2. ágúst
1902, eins og áður er sagt, að leggja blómsveig á leiði ]óns
Sigurðssonar, en »þjóðhátíðinni« er eiginlega þar með lokið.
Það sem mest ber á eru glannalegar auglýsingar, festar upp
á götuhornum, prentaðar á heilli og hálfri síðu í dagblöðun-
um og hrópaðar af drengjum á götunum, um að mikið verði
um dýrðir á Iþróttavellinum. Dýrðin er þá sú, að stjórn vall-
arins hefir fengið einhvern til að tala, hann talar ef til vill
vel, en fæstir, sem á völlinn koma, heyra mál hans. Innan
Qirðingarinnar ráfar strjálingur af fólki um forina og í pollun-
um, ef rignir, en með öll vit full af ryki ef þurkur er; eða
fólkið stendur í höm og hefst ekki að. Einhver tæki eru
1) Nú hafa háskólastúdentar sert þenna dag að merkisdegi sínum.
°9 er það mæta vel farið. Sigurður skólameistari Ouðmundsson átti hug-
Hyndina að þessu.
2) Stjórnartíð. 1920, B bls. 7.