Eimreiðin - 01.01.1923, Síða 75
EIMREIÐIN
FORNAR S0OUR OG ORNEFNI
71
liukl og galdra. Það hafa líka margir verið grunaðir um slíkt,
íram á vora daga, er hafa verið fróðari en almenningur. (Lýs-
ing íslands eftir próf. Þorv. Thoroddsen, 2. b., 336. bls.).
Það er eðlilegt, að nútímafólk, sem les og heyrir fjölda
skáldsagna og man þær, ef til vill, ekki deginum lengur, eigi
bágt með að skilja, að fornsögur vorar hafi geymst í minni
Tnanna lítið breyttar öld eftir öld, þó margir vorir lærðustu
og vitrustu menn hafi verið þeirrar skoðunar.
Það er gott dæmi þess í fyrnefndri ritgerð hr. próf. F.
hve sagnir alþýðu og sveitafólks eru oftast ábyggilegar, svo
•sem um haug Ottars Vendilkráku í Svíþjóð. í ritgerðinni er
sagt, að örnefni þetta hafi verið nefnt »Ottarshaugur«, að
minsta kosti frá 1677, svo sögur fari af, og eru færð ljós
rök fyrir því í ritgerðinni, að konungur, er Ottar hét, sé þar
■heygður.
I þessu sambandi má minna á örnefni eitt hér á landi, sem
sagnir eru um, að hafi haldist óbreytt í munni þjóðarinnar
fram á vora daga, a. m. k. frá því á 17. öld. Það er bergið
á milli Flosa- og Nikulásargjár á Þingvöllum. en sökum þess,
að eg vil ekki endurtaka það, er eg hefi áður sagt um örnefni
betta (Skírni 1914), fjölyrði eg ei meira um það hér.
I Arbók Fornleifafélagsins 1918 er þess getið, að formaður
félagsins hafi komið með þá uppástungu, að félagið gengist
Tyrir, að safnað væri örnefnum um land alt, ef auðið væri, og
bau skrásett. Fundur félagsins tók því vel, og kaus 3 mæta
nienn í nefnd, til þess að íhuga málið. Það er vonandi, að
landsmenn verði því sinnandi, því það er áríðandi, að gömul
og merk örnefni gleymist ekki, eða verði rangnefnd, eins og
t d. á sér stað með sum örnefni á landsuppdrætti herforingja-
Táðsins. Þar eru ýms örnefni, sem eg þekki, rangnefnd, og
•Önnur skakt sett, en sumt af því eru vitanlega prentvillur, svo
sem 2 bæjanöfn hér í hreppi: Stóra-Hvalsá og Litla-Hvalsá,
•°9 sama er að segja um 2 bæi í Grímsneshreppi í Arnes-
sýslu: Stóra- og Minna-Mosfell. Á heiðlendi hér upp frá Bæ
1 Hrútafirði er einkennileg klettaborg, sem kölluð er Skóga
(eða Skóa), en hálendið, sem hún er á, nefnt hryggir. Á