Eimreiðin - 01.01.1923, Page 85
EIMREIÐIN
S0LVI HELQASON
81
Einn fagran vordag var alt fólkið á Melum úti við og eng-
mn í bænum. Þá sjáum við hvar Sölvi kemur gangandi með
^assa á bakinu, svo stóran, að hann var lítið minni en meðal
fiárhúshurð. Móðir mín sendi eldhússtúlkuna sína til að vinna
honum beina. Það var aldraður kvenmaður, vingjarnlegur og
blíður í máli. Þegar hún hefir boðið honum til baðstoíu, tekur
hún hann tali og segir: »Hvað ertu nú að fara, Sölvi minn?«
®Eg er nú að fara af landi burt«, segir hann, »og ætla fyrst
landveg til Reykjavíkur, og baðan sjóveg til Norður-Ameríku.
gat ekkert flutt með mér, nema pappírana mína. Þeir eru
' þessum kassa. Það eru 11,000 myndir og 900 blómstur.
^etta kostar sína peninga þegar þangað er komið. Hér segir
fólk: »Þetta er fallegt, þetta er gáfulegt«. — En eg et ekki
betta«. Sölvi fór svo að hafa sokkaskifti. Hann bað konuna
að lána sér háa sokka, því sér væri svo ilt í bakinu: sagðist
vera dauður, drepinn og kúgaður, af því að bera sífelt svona
tunga byrði á bakinu. Hún gerði sem hann bað, þótt hún
hefði aldrei heyrt fyr að langir sokkar læknuðu slíkt.
Ffaman af æfi sinni mun Sölvi hafa unnið, að minsta kosti
a sumrin. Eg man að hann sagði frá, að hann hefði verið í
kaupavinnu hjá séra Jakob Guðmundssyni á Ríp, — síðar á
Sauðafelli í Dölum. »Séra Jakob er sá mesti sláttumaður, sem
nú er uppi á íslandi«, sagði Sölvi. »Hann sló 3 dagsláttur á
úag. En«, bætti hann við, »þá sló eg 6«.
Einu sinni sagðist hann hafa slegið tjörn nokkra með fleiri
^önnum. Sumir gengu svo langt fram, að vatnið náði þeim í
^itti, öðrum undir höndur, en Sölvi gekk svo langt fram fyrir
t’á alla, að hann varð að halla sér aftur á bak, svo vatnið
rVnni ekki upp í hann.
Aldraður maður, hér í sveitinni, systursonur séra Jakobs,
Se9ist vel muna eftir Sölva þegar hann \^r kaupamaður á
^'P. Segir hann að Sölvi hafi ekki verið sérlegur afkasta-
uiaður, en fremur strákslegur, og lítið hafi þurft út af að bera,
W þess að hann hótaði fólki að drepa það.
^að, sem Sölvi var þó stoltastur af, var málaralistin. Hann
syndi sjaldan myndir sínar hjá okkur, af því foreldrar mínir
9afu sig lítið að honum. Þó man eg að hann sýndi einu sinni
6