Eimreiðin - 01.01.1923, Síða 135
EIMBEIÐIN
Nonni er kominn heim!
Fyrsfu viðtökurnar eru þessar:
Gðður gestur.
Þegar eg Ias „Nonna“ fyrst á frummálinu, bókina sem íslendingurinn
síra Jón Sveinsson hafði ritað á þísku, varð mér þegar ljóst, að vönduð
íslensk útgáfa af henni mundi bókmentum vorum góður fengur. — Og nú
er slík útgáfa komin. — Nonni er kominn heim til ættjarðar sinnar f ís-
lenskum búningi, sem honum hæfir og fer vel. Síðan hann kom út á þýsku
fyrsta sinni (árið 1913), hefir hann stöðugt verið að afla sér og íslandi
vinsælda og góðfrægðar meðal útlendra lesenda. — Hvað eftir annað hefir
hann verið gefinn út á frummálinu, þýsku. Og hver þjóðin eftir aðra hefir
fært hann til sinnar tungu, svo að bæði eldri og yngri — og ekki síst
æskan — mætti fá að njóta fegurðar þeirrar og hollustu, sem sál þessa
íslenska drengs býr yfir, og snildarlega nýtur sín í meðferð hins þroskaða
og gagnmentaða höfundar. Nonni hefir verið útlendum þjóðum „tær berg-
vatnslind ofan úr friðsælum fjalladal, heilnæm og hressandi“, á þessum
tíma, þegar mikið af skáldbókmentunum hefir verið andlegur fúlilækur,
sem „öslast um miljónaborgirnar" og fleytir með sér óhroðanum þaðan.
Hreystin og manngöfgin, sem bókin Iýsir af einfaldri, nærri barnslegri
snild, hefir hrifið hina útlendu lesendur, og trygt Nonna virðingarsæti í
heimsbókmentunum. Og höfundur hennar, Jón Sveinsson, er virtur og
elskaður meðal margra þjóða fyrir þessa bók sína og aðrar. Það er því
góðra gjalda vert, að Ársæll Árnason hefir ráðist í útgáfu þessarar bókar,
og hygst að halda áfram annara rita höfundarins, sem eru framhald af
Nonna. Slíkt fyrirtæki á að ganga að óskum.
í Nonna er höf. að lýsa utanför sinni, haustið 1870, er hann var 12
ára gamall. Lýsir hann fyrst tilefni og aðdraganda ferðarinnar og því
næst ferðinni sjálfri. Hann fór alla þessa leið, frá Akureyri til Kaup-
mannahafnar, á einmastraðri seglskúfu. Á Ieiðinni ratar hann í ýms æfin-
týr og örðugleika, eins og vænta má á langri leið, þegar skútan á alt
undir náð eða ónáð höfuðskepnanna. Ollum atvikum, smáum og stórum,
alvarlegum og skemtilegum, er lýst með hlýjum innileik og snild barns-
legrar einfeldni. Nonni litli elskar náttúruna og lýsir hrifning sinni Iátlaust
og fjörlega, svo að Iesandinn hlýtur að hrífast með, hvort sem lýst er
dýrum eða líflausri náttúrunni. Nonni er óspilfa, yndislega náttúrubarnið,
sem getur gefið Iesanda sínum hlutdeild í fegurð og dýrð sólaruppkom-
unnar íslensku, sefandi friði sumarnæturinnar, æði og hamförum Ægis-
dætra i ofviðri, kuldahvítri kyrð og tign heimskautaíssins, yfirleitt öllum
áhrifum náttúrunnar í sínum margbreytilegu myndum. — Nonni er hraustur
og fjörugur, tjóður og gáfaður drengur, er verður hugljúfi allra, er kynn-
ast honum. Á sama hátt mun bókin um hann verða hugljúfur vinur öllum
er kynnast, vinur, sem allir vilja eiga, en engir án vera. En um leið og
Nonni er hverjum dreng skemtilegri, er hann sannkölluð fyrirmynd ung-
linga. Hann elskar guð, æftjörð sína og móður sína og lýsir sú ást hans
sér víða yndislega vel. Og bókin „Nonni" auðgar íslenskar bókmentir að
sannri lýsingu af góðri og ásfrlkri móður.
Vafalaust vinnur Nonni hylli allra lesenda sinna, eldri sem yngri.
Árni Sigurðsson fríkirkjuprestur [i Vísi 19. des. 1922].