Eimreiðin


Eimreiðin - 01.10.1927, Page 10

Eimreiðin - 01.10.1927, Page 10
314 FRANCESCO PETRARCA EIMREIÐIN Með sárum trega kvaddi hann Lauru, og einhver innri rödd sagði honum, að hann mundi aldrei sjá hana framar. Svo varð og. Rúmu ári síðar dó Laura úr pestinni miklu, sem nefnd var »svarti dauði«. Petrarca var í Verona þegar hún dó, en hann frétti ekki lát hennar fyr en í Parma sex vikum síðar. Þá ritaði hann þessi orð framan á uppáhalds- bók sína, Virgil: »Laura, fyrirmynd allra dygða og sem ég hef kveðið um í árafjölda, kom mér fyrst fyrir augu sjötta apríl 1327 klukkan 6 um morguninn í kirkjunni Sainte Claire í Avignon. I sama bæ, í sama mánuði, á sama degi og sömu stundu var hún kölluð burtu úr þessum heimi, meðan ég var svo ógæfusamur að vera í Verona og hafði ekki hugboð um ógæfu mína. Eg var í Parma þegar ég, 19. maí, fékk bréf frá vini mínum Ludovico, er færðu mér þessi sorgartíðindi. Sama dag og hún dó var hinn fagri og skírlífi líkami hennar jarðsettur að kveldi dags í klausturkirkju grámunka. Eg er sannfærður um, að sál hennar, eins og Seneca segir um Scipio, er snúin aftur tii himins, þaðan sem hún kom. í hinni djúpu sorg minni hef ég viljað skrá þessa sáru endurminningu á þetta blað, sem ég daglega hef fyrir augum, til þess ávalt að muna eftir, að ekk- ert er framar hér í heimi, sem mér getur geðjast að, og að nú þegar þetta band er brostið er kominn tími til að flýja þessa Babylon, sem ekkert bindur mig framar við. Eg vildi, að þessi orð, sem ég hef skrifað, og ellin, sem fer í hönd, megi örva mig til að losast við öll bönd, og ég bið guð að hjálpa mér til að líta á hin beisku vonbrigði, fánýtu eftirvæntingar og óvæntu ástríður liðna tímans með karlmensku*. Síðustu ár æfi sinnar bjó Petrarca í bænum Arqua, nálægt Padua, þar sem hann hafði bygt sér hús í fjallshlíðinni. Hér fanst hann örendur í lesstofu sinni 19. júlí 1374. I Arqua er gröf hans og á henni fagur legsteinn. Þangað fara enn margir til að sjá legstað hans, en áður fyr meir flyktist fólkið þangað, eins og hann hefði verið dýrðlingur. Til þess að skilja þýðingu Petrarca fyrir heimsmenninguna er nauðsynlegt að hafa hugfast myrkur miðaldanna og þa niðurlægingu, sem Ítalía var komin í. Að sönnu er Dante kominn á undan honum og er honum í mörgu meiri, en það
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112

x

Eimreiðin

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Eimreiðin
https://timarit.is/publication/229

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.