Eimreiðin - 01.01.1928, Blaðsíða 125
ElMREIÐIN
RITSJÁ
105
Líkt og fléttað geig og gysi
grimmilegu hugarblysi
skaut á hennar skilnings-kveik. —
Nær sem minning þessi þreytir
þarf hún „púns“ og mikils neytir,
svo rósemd hjarfans verði’ ei veik.
Þessi hæfileiki Jak. Thor. til þess að lýsa mönnunum eins og þeir
Serast lakastir og breyskastir kemur ákaflega vel fram í sumum kvæðum
hans. Hann beitir þessum hæfileika ekki með neinni vandlætingu, heldur
'vsir ósköp blátt áfram og góðlátlega, en meinlega á stundum. Yfirleitt
eru mannlýsingar í þessum anda oft með afbrigðum góðar hjá skáldinu,
°S vil ég aðeins í því sambandi benda á kvæði eins og Heit og efndir,
Brigðir, / sporvagni og Öskukarlinn, að ógleymdu kvæðinu Vígsterkur,
Sem að vísu er nokkuð annars eðlis en hin.
Lifsskoðun Jak. Thor. má ráða af ýmsum kvæðum hans í þessari bók,
að hvergi setji hann hana fram til fullnusfu. Hann er bjartsýnn á
iífið, en þó meg fu]lri meðvitund um ábyrgð þá og skyldui, sem það
beimtar af oss. Lífsskoðun hans er siðræn út í æsar, en ekki bundin við
nema eina stefnu, að því er ráðið verður af ljóðum hans. Ef ætti að
skipa honum í flokk, mundi helzt verða að telja hann með þeim, sem
Lrefjast hlýðni við skyldur þær, sem lífið leggur oss á herðar, en viður-
kenna um Ieiö, hve skamt vér sjáum út yfir jarðlífið og sætta sig við að
bíð;
hli
a og vona hins bezta. Hann hvetur í kvæðum sínum til þess, að gæta
9)afa lífsins og Verja þeim til blessunar fyrir sig og aðra, „því sólskin
auztu °9 kvitta þarft í sfaðinn, með vöku og starfi" (sjá kvæðið Dagur).
^atln hvetur til dáða. Starfið er eina rétta leiðin:
Okkur ber að vilja og vinna, —
venda Iandsins fornu klæðum,
sauma úr fjallsins urðarúlpu
ungfrúr-kjól, með grænum slæðum.
(í sjónauka).
® yér eigum að ganga heilhuga að starfi og berjast ótrauðir, því
betri er styrr með harkahætti
Hann
hræsnisfriðnum göfgi-snauða.
(Heilhugi).
’rúir á fegurðina, eins og hún birtist í litum og hljómum og lífinu
, ^verfis oss, en þann, sem stendur að baki þessu öllu, fáum vér ekki
na‘9ast: