Eimreiðin - 01.01.1928, Blaðsíða 47
EiMREIÐIN
SKREIÐ
27
Suðurnes. Þar er fagurl og frjósamt, en oft vætusamt. Þar
var siður að liggja vel, að minsta kosti einn sólarhring, hvernig
sem viðraði, því sæmilega bithaga var ekki hægt að fá frá
Krísuvík um alt Suðurnes, alt til Hraunsholtsmýrar fyrir ofan
Hafnarfjörð, og ekkert rennandi vatn er á allri þeirri leið
nema Hafnarfjarðarlækur.
Ffá Krísuvík var svo haldið út yfir Krísuvíkurhálsa. Var
kað vondur vegur, apalhraun og brattir móbergshálsar á milli.
^*n af hraunkvíslum þessum heitir Ögmundarhraun, og er
tað kent við einhvern Ögmund, sem á að hafa rutt vegnefn-
una gegnum hraunið, en tók svo nærri sér verkið, að hann
ezt að því loknu, og er leiði hans sýnt austast í hrauninu.
Urn veginn í Ögmundarhrauni, eins og hann var þá og fyr,
er hl þessi gamla vísa:
Eru í hrauni Ogmundar
ótalmargir þröskuldar;
gjótur bæði og grjótgarðar
glamra þar við skeifurnar.
Onnur hraunkvísl þar heitir Leggjabrjótur, og er það rétt-
nefm. Þar sunnan við veginn niður við sjóinn er hin forna
'skisæla verstöð Selatangar, sem nú er fyrir löngu aflögð.
estan til á hálsinum er allmerkilegur klettur. Er það sér-
^takur hraunstandur rétt við veginn. Utan í honum eru þrjár
raunblöðrur, opnar ofan til, oftast fullar af regnvatni og þannig
Settar, ag hæg hinnar efstu svarar til þess, að vaxinn maður
9eh drukkið úr henni standandi, en hestur úr þeirri í miðið
°9 hundur úr hinni neðstu. Er víst um það, að þarna hefur
^''Sur fengið þráðan svaladrykk, enda heitir kletturinn
rVkk] arsteinn.
^kamt frá Drykkjarsteini skiftust vegirnir suður á Suður-
n?sitl’ Vogana og Vatnsleysuströndina. í þau héruð var helst
s°h til skreiðarkaupanna, því þar bjuggu stórbændur og útgerð-
armenn miklir, er áttu mikið af skreið, er þeir létu til sveita-
anna í vöruskiftum. Meðal hinna helstu þessara manna voru
, lr Einar ]ónsson í Garðhúsum í Grindavík og Sæmundur
Jarngerðarstöðum, bróðir hans, í Höfnum Sigurður Ðene-
i’u*5800 í Merkinesi og Ketill Ketilsson í Kotvogi, á Miðnes-
u Hákon Eyjólfsson á Stafnesi og Sveinbjörn í Sandgerði,